Steinunn Jónatansdóttir (hjúkrunarfræðingur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. ágúst 2019 kl. 19:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. ágúst 2019 kl. 19:22 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Steinunn Jónatansdóttir hjúkrunarfræðingur fæddist 20. september 1973.
Foreldrar hennar voru Jónatan Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 11. mars 1954, d. 17. mars 1984 og Árný Sigríður Baldvinsdóttir húsfreyja, f. 29. nóvember 1955, d. 19. maí 1979.
Fósturforeldrar Steinunnar voru föðurforeldrar hennar Brynjúlfur Jónatansson rafvirkjameistari, f. 23. júní 1924 og kona hans Lilja Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 17. júní 1922, d. 4. september 2008.

Börn Jónatans og Árnýjar Sigríðar:
1. Steinunn Jónatansdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 20. september 1973 í Svíþjóð.
2. Brynjúlfur Jónatansson íþróttafræðingur, verslunarmaður, leiðsögumaður, f. 1. janúar 1977 í Reykjavík.

Fóstursystkini Steinunnar:
1. Steinunn Brynjúlfsdóttir húsfreyja, nam sálfræði, lífeindafræðingur, f. 30. september 1948, d. 19. ágúst 2008.
2. Ragnheiður Brynjúlfsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, skrifstofustjóri, f. 22. febrúar 1952, d. 4. júlí 2011.
3. Hjálmar Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 22. mars 1953.
4. Jónatan Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 11. mars 1954, d. 17. mars 1984, faðir Steinunnar.
5. Anna Brynjúlfsdóttir starfsmaður á röntgenstofu Domus Medica, f. 13. júlí 1955.
6. Rúnar Páll Brynjúlfsson skrifstofumaður, tæknimaður hjá Valitor, f. 9. ágúst 1958.
7. Brynhildur Brynjúlfsdóttir húsfreyja, starfsmaður hjá Arionbanka, f. 10. janúar 1960.

Steinunn missti móður sína, er hún var á sjötta árinu og föður sinn á ellefta árinu. Föðurforeldrar hennar tóku hana í fóstur.
Steinunn lauk hjúkrunarnámi 1997 á Akureyri og fékk starfsleyfi 16. október 1997.
Hún var hjúkrunarforstjóri við Heilbrigðisstofnunina og var varabæjarfulltrúi 2002-2006, sat í stjórn Náttúrustofu Suðurlands.
Steinunn var skólastjóri og Óðinn kennari við Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi 2012-2013. Hún er við framhaldsnám í Kanada, doktorsnám í dreifbýlishjúkrun.

I. Maður Steinunnar er Óðinn Steinsson rekstrarfræðingur, þjónustustjóri hjá Íslandsbanka í Eyjum, nemi í umhverfis- og auðlindafræði í Kanada, f. 25. október 1973. Foreldrar hans: Mary Kristín Coiner húsfreyja, f. 5. júlí 1943, d. 4. júní 2019, og Stein (Bró) Ingolf Henriksen vélstjóri, f. 10. janúar 1942.
Börn þeirra:
1. Rúnar Kristinn Óðinsson, f. 27. ágúst 1996.
2. Brynjar Ingi Óðinsson, f. 19 nóvember 1999.
3. Jónatan Árni Óðinsson, f. 20. mars 2005.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Brynjúlfur Jónatansson.
  • Google.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 5. nóvember 2005. Minning Steingerðar Jóhannsdóttur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.