Steinmóður Vigfússon (Steinmóðshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. apríl 2015 kl. 17:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. apríl 2015 kl. 17:17 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Steinmóður Vigfússon þurrabúðarmaður, sjómaður í Steinmóðshúsi fæddist 1775 og lést 28. júlí 1846.
Faðir hans var Vigfús bóndi á Rauðhálsi í Mýrdal, f. 1747, d. fyrir 1816, Steinmóðsson bónda á Herjólfsstöðum í Álftaveri, f. (1714), d. fyrir 1754, Vigfússonar.
Móðir Steinmóðs í Steinmóðshúsi er ókunn, en faðir hans fékk sekt vegna barneignar utan hjónabands. Líklegt þykir, að það hafi verið vegna fæðingar Steinmóðs. Þá væri móðirin Jódís Jónsdóttir, líklega f. 1755.

Steinmóður var vinnumaður á Litlu-Heiði 1801, á Ytri-Sólheimum 1817 eða fyrr til 1824. Hann fluttist til Eyja 1824, var til húsa í Ömpuhjalli með Elínu á því ári, en Guðmundur maður hennar var í Hólskoti. Hann var húsbóndi í tómthúsinu Steinmóðsbæ í Eyjum 1834, í Steinmóðshúsi 1845 með Elínu og fjórum börnum sínum.
Hann lést 1846.

I. Barnsmóðir Steinmóðs var Gróa Narfadóttir, f. 1793, vinnukona á Býjarskerjum á Reykjanesi 1816.
Barn þeirra var:
1. Guðrún Steinmóðsdóttir, f. 1813, vinnukona í Þverspyrnu, Útskálum 1860.

II. Kona Steinmóðs (15. júlí 1832) var Elín Guðmundsdóttir húsfreyja í Steinmóðshúsi 1845, f. 27. ágúst 1796, d. 8. júlí 1876. Steinmóður var síðari maður hennar.
Börn þeirra Elínar voru:
1. Vigfús Steinmóðsson, f. 11. júní 1829, d. 18. júní 1829 úr ginklofa.
2. Vilborg Steinmóðsdóttir, f. 27. febrúar 1833, d. 3. júní 1907.
3. Jón Steinmóðsson, f. 17. nóvember 1834, d. 1896.
4. Elín Steinmóðsdóttir, f. 26. maí 1836, d. 24. desember 1899.
5. Ingibjörg Steinmóðsdóttir, f. 20. nóvember 1837, d. 30. nóvember 1837 úr ginklofa.
6. Steinmóður Steinmóðsson, f. 5. september 1839. Mun hafa dáið ungbarn.
7. Sigríður Steinmóðsdóttir, f. 20. desember 1842, d. 12. febrúar 1924.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.