Steinmóður Vigfússon (Steinmóðshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. apríl 2013 kl. 20:31 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. apríl 2013 kl. 20:31 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Steinmóður Vigfússon''' þurrabúðarmaður, sjómaður í Steinmóðshúsi fæddist 1775, líklega í V-Skaftafellssýslu, d. 28. júlí 1846.<br> Faðir hans var Vigfús, f. ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Steinmóður Vigfússon þurrabúðarmaður, sjómaður í Steinmóðshúsi fæddist 1775, líklega í V-Skaftafellssýslu, d. 28. júlí 1846.
Faðir hans var Vigfús, f. 1747, vinnumaður á Heiði í Mýrdal 1801, fór til Eyja um 1824, Steinmóðsson bónda á Herjólfsstöðum í Álftaveri, f. (1714), d. fyrir 1754, Vigfússonar. Móðir Steinmóðs í Eyjum er ókunn, en faðir hans fékk sekt vegna barneignar utan hjónabands. Líklegt þykir, að það hafi verið vegna fæðingar Steinmóðs. Þá væri móðirin Jódís Jónsdóttir, líklega f. 1755.

Steinmóður var húsbóndi í tómthúsinu Saurbæ í Eyjum 1835, í Steinmóðshúsi 1845 með Elínu og fjórum börnum sínum.

Barnsmóðir Steinmóðs var:
Gróa Narfadóttir, f. 1793, vinnukona á Býskerjum á Reykjanesi 1816.
Barn þeirra var:
Guðrún Steinmóðsdóttir, f. 1813, vinnukona í Þverspyrnu, Útskálum 1860.

Kona Steinmóðs (15. júlí 1832) var Elín Guðmundsdóttir húsfreyja í Steinmóðshúsi 1845, f. 27. ágúst 1796, d. 8. júlí 1876. Steinmóður var síðari maður hennar.

Börn þeirra Elínar voru:
1. Vigfús Steinmóðsson, f. 1829, d. sama ár.
2. Vilborg Steinmóðsdóttir, f. 27. febrúar 1833, d. 1907.
3. Jón Steinmóðsson, f. 1834, d. 1896.
4. Elín Steinmóðsdóttir, f. 1836.
5. Sigríður Steinmóðsdóttir, f. 20. desember 1842, d. 12. febrúar 1924. Hún var gift vinnukona í Ysta-Skála undir Eyjafjöllum 1870. Maður hennar var þar Jón Hannesson vinnumaður; ekkja, vinnukona í Holti þar 1890, hjá dóttur sinni húsfreyjunni Jónínu Sigríði Jónsdóttur á Vesturgötu 55 í Rvk 1901, niðursetningur í Varmahlíð u. Eyjafjöllum 1910.


Heimildir