Steindór Bjarnfreðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. maí 2022 kl. 11:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. maí 2022 kl. 11:38 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Steindór Bjarnfreðsson.

Steindór Bjarnfreðsson frá Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V-Skaft., sjómaður fæddist þar 26. júní 1930 og lést 28. september 2011 á Hrafnistu.
Foreldrar hans voru Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson bóndi, f. 13. september 1889 í Gamlabæ í Meðallandi, d. 13. september 1964 í Reykjavík, og kona hans Ingibjörg Sigurbergsdóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1893 í Fjósakoti í Meðallandi, d. 20. júlí 1945.

Börn Ingibjargar og Bjarnfreðs:
1. Björn Gísli Bjarnfreðsson bóndi í Ormskoti í Fljótshlíð, f. 24. júlí 1913, d. 30. apríl 1980. Kona hans Arnheiður Sigurðardóttir.
2. Vilborg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja á Svanavatni við Stokkseyri, sjúkraliði, f. 19. júní 1915, d. 30. maí 1995. Maður hennar Ásmundur Siggeirsson.
3. Sigurbergur Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, f. 30. september 1916, d. 8. febrúar 2002.
4. Haraldur Bjarnfreðsson sjómaður, f. 23. desember 1917, fórst 29. janúar 1940.
5. Guðjón Bjarnfreðsson garðyrkjumaður, verkamaður, kvæðamaður í Reykjavík, f. 3. mars 1919, d. 28. janúar 2009.
6. Lárus Bjarnfreðsson málari, f. 18. maí 1920, d. 23. desember 1975. Kona hans Guðrún Benjamínsdóttir.
7. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir alþingismaður, f. 8. ágúst 1921, d. 26. apríl 1994. Fyrrum maður hennar Anton Júlíus Guðjónsson. Maður hennar Runólfur Guðsteinn Þorsteinsson.
8. Jóhanna Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, bókavörður, f. 27. desember 1922, d. 4. október 2010. Maður hennar Ingólfur Finnbjörnsson.
9. Ólöf Bjarnfreðsdóttir sjúklingur, f. 24. júlí 1924, d. 29. ágúst 2019.
10. Ingibjörg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1925, d. 10. desember 1985. Maður hennar Guðmundur Óskar Guðmundsson.
11. Eygerður Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, starfsstúlka, f. 4. janúar 1927, d. 4. apríl 1991.
12. Ármann Bjarnfreðsson bóndi, verkstjóri, fiskimatsmaður í Eyjum, f. 30. mars 1928, d. 9. júní 1988. Kona hans Kristín Óskarsdóttir.
13. Aðalsteinn Bjarnfreðsson sjómaður, verslunarmaður, f. 9. júní 1929, d. 9. apríl 2005. Kona hans Jóhanna Bára Sigurðardóttir.
14. Steindór Bjarnfreðsson sjómaður, f. 26. júní 1930, d. 28. september 2014. Kona hans Oddbjörg Sigurðardóttir.
15. Valdimar Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, myndlistamaður, f. 16. febrúar 1931, d. 4. maí 2018.
16. Magnús Bjarnfreðsson blaðamaður, útvarpsþulur, f. 9. febrúar 1934, d. 30. ágúst 2012. Kona hans Guðrún Árnadóttir.
17. Sveinn Andrés Bjarnfreðsson, f. 27. ágúst 1935, d. 17. janúar 1941.
18. Ólafur Bjarnfreðsson verkamaður, f. 28. desember 1936, d. 23. október 2019. Kona hans Pisamai Phaengsrisarn.
19. Vilmundur Siggeir Bjarnfreðsson verkamaður í Reykjavík, f. 3. september 1939, d. 21. nóvember 1964.
20. Þóranna Halla Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, þerna, f. 7. september 1942, d. 1. febrúar 1982. Maður hennar Ásgeir Hraundal.

Steindór var með foreldrum sínum, en móðir hans lést, er hann var 15 ára. Hann var með föður sínum, flutti með honum til Eyja 1946, bjó á Brekastíg 31. Hann var sjómaður, flutti til Reykjavíkur 1948.
Þau Oddbjörg giftu sig 1961, eignuðust fjögur börn. Þau skildu 1980.
Steindór dvaldi síðast á Hrafnistu í Reykjavík.
Hann lést 2011.

I. Kona Steindórs, (1961, skildu 1980), var Oddbjörg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 27. febrúar 1932 í Kerlingardal í Mýrdal, d. 16. júlí 2001. Foreldrar hennar voru Sigurður Sverrisson bóndi í Jórvík í Álftaveri, f. 4. október 1895, d. 7. júní 1992, og kona hans Ástríður Bárðardóttir húsfreyja, f. 14. janúar 1904 í Holti í Álftaveri, d. 10. maí 1967.
Börn þeirra:
1. Eríngur Steindórsson, f. 29. september 1963, d. 27. nóvember 1999.
2. Sigurður Steindórsson, f. 13. júlí 1965. Fyrrum kona hans Valgerður Ottósdóttir.
3. Ásgeir Steindórsson, f. 25. júní 1966.
4. Sverrir Steindórsson, f. 21. júlí 1967. Fyrrum kona hans Jórunn Víglundsdóttir. Kona hans Kristín Gunnarsdóttir.
5. Ingibjörg Steindórsdóttir, f. 26. desember 1969. Sambúðarmaður hennar Alfons Sólbjartsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 10. október 2011. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.