Spendýr

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. nóvember 2005 kl. 11:46 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. nóvember 2005 kl. 11:46 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Háhyrningar við Vestmannaeyjar

Vestmannaeyjar státa ekki af mörgum tegundum villtra dýra. Í Eyjum eru nagdýr einu villtu landspendýrin þ.e.rottur, mýs og kanínur. Nokkuð er af sjávarspendýrum eins og hvölum og selum í kringum Vestmannaeyjar.

Nokkuð er af búfé í Eyjum, sauðfé og hestum en nautgripir hafa ekki verið þar eftir gos. Fyrir þann tíma var talsverður kúabúskapur í Eyjum.