Soffía Lisbeth Andersdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. desember 2012 kl. 10:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. desember 2012 kl. 10:25 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Soffía Lísbet Andersdóttir¹) fæddist 8. október 1847 og lést 10. júní 1936. Móðir hennar var Ásdís Jónsdóttir.

Hún var gift Gísla Stefánssyni kaupmanni í Hlíðarhúsi.
Börn þeirra voru Friðrik f. 1870, Jes f. 1872, Ágúst, f. 1874, Stefán, f. 1876, Anna Ásdís, f. 1878, Guðbjörg Jónína, f. 1880, Jóhann, f. 1883, Lárus, f. 1885, Kristján, f. 1891, og Rebekka.

Á meðal afkomenda þeirra eru Gísli Stefánsson frá Ási og Friðrik Jesson.
¹) Í prestþjónustubók er hún skráð Sophie Elísebet Andersdóttir við skírn.