Skjaldbreið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. desember 2016 kl. 11:04 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. desember 2016 kl. 11:04 eftir Inga (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Skjaldbreið fyrir miðri mynd.
Sigurður Ingimundarson og Hólmfríður Jónsdóttir ásamt börnum, vinnu- og vertíðarfólki.
Sigurður Ingimundarson og Hólmfríður Jónsdóttir ásamt börnum, vinnu- og vertíðarfólki.
Júlíus, Kristinn, Sigríður, Pálmi, Friðjón Sigurðarbörn frá Skjaldbreið.
Skjaldbreið sést hér lengst til vinstri.

Húsið Skjaldbreið stóð við Urðaveg 36. Sigurður Ingimundarson lét reisa húsið og hófst bygging þess árið 1908. Yfirsmiður við byggingu hússins var Guðmundur Magnússon á Goðalandi. Haustið 1908 fauk það sem búið var að byggja af húsinu af grunni þess en með hjálp góðra manna, s.s. Gísla J. Johnsen, var það endurreist. Sumarið 1909 var húsið fullbyggt og Sigurður og hans fjölskylda fluttu inn í húsið.

Sigurður var mikill útgerðarmaður og var margt um manninn í húsinu á veturna. Í stofum hússins voru gjarnan haldnin danssamkvæmi með harmóníkuspili.

Íbúar Ólafur Ingileifsson og Sigurjóna Sigurjónsdóttir ásamt börnum. Helgi Árnason málari og Sigríður Guðmundsdóttir og börn þeirra.

Árið 1922 Valdimar Bjarnason og Ingibjörg Stefánsdóttir og börn þeirra. Guðmundur Magnússon og Helga Jónsdóttir og börn þeirra.

Árið 1926 Þorsteinn Hafliðason og Ingibjörg Þorsteinsdóttir og börn þeirra. Brynjólfur Brynjólfsson 70 ára.

Árið 1953 Sigurjón Jónsson og Bjarnveig Ólafsdóttir og dóttir þeirra Sigríður Sigurjónsdóttir, Unnsteinn Þorsteinsson og Rut Árnadóttir og barn þeirra Þorsteinn Unnsteinsson, Jón Kjartansson og Sigríður Anganýsdóttir og synir þeirra Einar Gylfi Jónsson og Kjartan Jónsson, einnig Einar Jóelsson f. 1912.

Í húsinu bjuggu hjónin Gísli Guðgeir Guðjónsson og Guðrún Alexandersdóttir ásamt dóttur þeirra Guðlaugu einig bjuggu í húsinu Hólmfríður G. Júlíusdóttir, Sigurvin J. Sigurvinsson, Helga Guðmundsdóttir, Valgerður U. Sigurvinsdóttir og Elísabet B. Guðbjörnsdóttir þegar gosið byrjaði 23. janúar 1973.

Húsið brann til kaldra kola aðfaranótt föstudags 16. febrúar í gosinu 1973 áður en hraunið náði upp að því og jafnaði það við jörðu. Mikið eldhaf var þegar kviknaði í því og átti slökkviliðið í miklum erfiðleikum með að bjarga nálægum húsum.


Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.
  • Húsin undir hrauninu, haust 2012.
  • Íbúaskrár 1922-1926-1953.