„Skátafélagið Faxi“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Lína 36: Lína 36:
* 1939-1942: [[Þorsteinn Einarsson]]
* 1939-1942: [[Þorsteinn Einarsson]]
* 1938-1939: [[Friðrik Jesson]]
* 1938-1939: [[Friðrik Jesson]]
1938 [[Friðrik Jesson]]
1939 - 1941 Þorsteinn Einarsson
1942 - 1944 Jes A. Gíslason
1945 - 1947 Sigurjón Kristinsson
1948 - 1949 Jón Runólfsson
1950 - 1953 Óskar Þór Sigurðsson
1954 Hafsteinn Ágústsson
1954 Ólafur Oddgeirsson
1954 Vigfús Jónsson
1955 - 1959 Jóhann Hlíðar
1960 - 1964 Þráinn Einarsson
1965 Jón Ögmundsson
1966 - 1969 Halldór Ingi Guðmundsson
1969 - 1974 Jón Ögmundsson
1974 - 1983 Vigdís Rafnsdóttir
1983 - 1986 Kristín Sigurðardóttir
1986 - Páll Zóphóníasson
    - 2014 Alma Eðvaldsdóttir
2014 - Frosti Gíslason


[[Flokkur:Stubbur]]
[[Flokkur:Stubbur]]
[[Flokkur:Félög]]
[[Flokkur:Félög]]

Útgáfa síðunnar 5. mars 2018 kl. 00:05

Skátar

Skátafélagið Faxi var stofnað árið 1938. Félagsforingi þess er Páll Zóphóníasson

Saga

Skátafélagið Faxi var stofnsett 22. febrúar 1938 og voru það 24 drengir á aldrinum 12-14 ára sem stóðu að stofnuninni. Fyrsti félagsforingi þeirra var Friðrik Jesson.

Starfsemi

Skátafélagið hefur hin síðari ár haldið úti þremur sveitum, Bakkabræður, Fífill og Dögun. Ennfremur er ein dróttskátasveit sem ber nafnið Ds. Westmenn.

Margir fastir liðir eru í skátastarfinu, til dæmis er skátadagurinn haldinn hátíðlegur 22. febrúar. Skátar eru í forgöngu skrúðgangna á sumardeginum fyrsta, 17. júní og öðrum hátíðardögum, og gegna þeir þar hlutverki sínu sem verndarar íslenska fánans. Á þriggja ára fresti er haldið landsmót skáta, og er skátafélagið þar oft verðlaunað.

Dögun

Dögun er sveit fyrir Ylfinga en það eru krakkar á aldrinum 8 til 10 ára.

Bakkabræður

Bakkabræður eru fyrir yngri skáta en það eru krakkar á aldrinum 11-12 ára. Á þessum aldri er byrjað að kenna skátum útivist og ýmislegt sem gæti nýst þeim í framtíðinni.

Fífill

Fífill er fyrir hálfdrættinga en það eru krakkar á aldrinum 13 til 14 ára. Þegar þarna er komið er reynt að kenna flokkunum að vera sjálfstæðari og kennd skyndihjálp, notkun áttavita og margt annað sem gæti bjargað þeim ef skátinn týndist í óbyggðum.

Ds. Westmenn

Skátar í Herjólfsdal

Ds. Westmenn er fyrir dróttskáta en það eru krakkar á aldrinum 15 til 18 ára. Því miður liggur þessi sveit í Vestmannaeyjum niðri vegna þess að erfitt er að fá krakka á þessum aldri til að koma í skátastarfið. Einnig er mikið um að krakkar á þessum aldri séu of uppteknir við að sjá um krakka í hinum sveitunum en þetta á allt eftir að breytast vonandi. Þarna er mikið kennt sem gæti nýst ef dróttskátinn gengur til lið við björgunarsveitina.

Húsnæðismál

Skátafélagið er í húsnæði við Faxastíg ásamt Björgunarfélagi Vestmannaeyja.

Gufuskálar

Skátafélagið á einnig skála upp á landi sem kallast Gufuskálar og er mikið notaður fyrir skáta í Eyjum og er einnig leigður öðrum skátafélugum.

Skátastykkið

Skátastykkið var byggt í krikanum í suðvesturhorni flugvallarins árið 1998. Húsið er byggt í stíl við gamla íslenska burstabæi, með þremur burstum og torfþaki.

Félagsforingjar

1938 Friðrik Jesson 1939 - 1941 Þorsteinn Einarsson 1942 - 1944 Jes A. Gíslason 1945 - 1947 Sigurjón Kristinsson 1948 - 1949 Jón Runólfsson 1950 - 1953 Óskar Þór Sigurðsson 1954 Hafsteinn Ágústsson 1954 Ólafur Oddgeirsson 1954 Vigfús Jónsson 1955 - 1959 Jóhann Hlíðar 1960 - 1964 Þráinn Einarsson 1965 Jón Ögmundsson 1966 - 1969 Halldór Ingi Guðmundsson 1969 - 1974 Jón Ögmundsson 1974 - 1983 Vigdís Rafnsdóttir 1983 - 1986 Kristín Sigurðardóttir 1986 - Páll Zóphóníasson

    - 2014	Alma Eðvaldsdóttir

2014 - Frosti Gíslason