Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1987/Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja 125 ára

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. desember 2018 kl. 14:59 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. desember 2018 kl. 14:59 eftir Vpj1985 (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Elsta þjónustufyrirtæki bátaflotans
Starfsfólk Bátaábyrgðurfélagsins, Jóhann Friðfinnsson, framkvæmdastjóri og Guðbjörg Karlsdóttir, skrifstofustúlka.


Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja varð 125 ára 26. janúar s.l. Á þessum tímamótum félagsins flutti það í eigið húsnæði að Strandvegi „Sandi“. Er þetta í fyrsta skipti sem félagið eignast húsnæði yfir starfsemi sína á liðlega aldarlöngum starfsferli. Starfsemi Bátaábyrgðarfélagsins í samvinnu við Tryggingamiðstöðina, er alhliða tryggingastarfsemi og hefur vöxtur og viðgangur félagsins verið sífellt vaxandi.