Sigurður Sveinsson (Bröttugötu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Sveinsson, sjómaður, netagerðarmaður fæddist 17. júní 1953 á Ásavegi 7.
Foreldrar hans Sveinn Sigurðsson frá Sveinsstöðum við Njarðarstíg, bifreiðastjóri, f. 31. maí 1928, og kona hans Haflína Ásta Ólafsdóttir frá Sauðanesi við Siglufjörð, húsfreyja, f. 8. ágúst 1932, d. 27. janúar 2024.

1. Ólrikka Sveinsdóttir húsfreyja, vinnur við þvotta, f. 20. september 1950 á Ásavegi 7. Maður hennar Þórólfur Þorsteinsson.
2. Drengur, f. 14. apríl 1952, d. 14. apríl 1952.
3. Sigurður Sveinsson sjómaður, netagerðarmaður, f. 17. júní 1953 að Ásavegi 7. Kona hans Þóra Ólafsdóttir.
4. Þór Jakob Sveinsson vinnuvélastjóri í Reykjavík, býr nú á Selfossi, f. 8. nóvember 1956 á Bessastíg 12. Kona hans Helga Þuríður Ágústsdóttir.
5. Rósa Sveinsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. september 1963. Maður hennar Guðni Hjörleifsson.
6. Jóna Sveinsdóttir, f. 21. júlí 1975. Sambúðarmaður Hilmar Ögmundsson.

Sigurður var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð sjómaður, síðan netagerðarmaður.
Þau Þóra giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Bröttugötu 43.

I. Kona Sigurðar er Þóra Ólafsdóttir, húsfreyja, skólaliði á leikskóla, f. 14. desember 1961.
Börn þeirra:
1. Thelma Sigurðardóttir, f. 2. janúar 1986.
2. Sveinn Sigurðsson, f. 9. desember 1992.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íbúaskrá 1986.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið. Minning Ástu Ólafsdóttur.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.