Sigurður Karlsson (Fagurhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. september 2022 kl. 19:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. september 2022 kl. 19:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: 289x289px|thumb|''Sigurður Karlsson. '''Sigurður Karlsson''' sjómaður, útgerðarmaður, trillukarl fæddist 29. mars 1904 á Garðsá í Fáskrúðsfirði og lést 12. ágúst 1972.<br> Foreldrar hans voru Karl Emil Stefánsson bóndi á Efri-Garðsá, f. 30. ágúst 1872, d. 27. desember 1949 og kona hans Jórunn Þ. Daníelsdóttir húsfreyja, f. 25. október 1878 Bróðir Sigurðar í Eyjum var<br> 1. Stefán Jón Karlsson sjómaður,...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Karlsson.

Sigurður Karlsson sjómaður, útgerðarmaður, trillukarl fæddist 29. mars 1904 á Garðsá í Fáskrúðsfirði og lést 12. ágúst 1972.
Foreldrar hans voru Karl Emil Stefánsson bóndi á Efri-Garðsá, f. 30. ágúst 1872, d. 27. desember 1949 og kona hans Jórunn Þ. Daníelsdóttir húsfreyja, f. 25. október 1878

Bróðir Sigurðar í Eyjum var
1. Stefán Jón Karlsson sjómaður, f. 7. febrúar 1908, d. 10. febrúar 1988.

Sigurður var með foreldrum sínum á Efri-Garðsá í Hafnarnesþorpinu 1910, hjá þeim, háseti, á Sléttu (Garðsá) þar 1920, og við fæðingu Maríu 1922. Þau Kristín bjuggu þar við fæðingu Karls Emils 1924. Hann var vinnumaður þar við fæðingu Jórunnar 1925.
Hann var bóndi á Efri-Garðsá 1928 og 1929, útgerðarmaður, sjómaður, trillukarl á Sléttu á Hafnarnesi 1930-1939, bóndi á Garðsá 1940-1942, trillukarl á Melbrún 1943-1952.
Sigurður flutti til Eyja 1953, var sjómaður, útgerðarmaður þar, trillukarl.
Þau Kristín hófu sambúð, hún skráð bústýra, eignuðust 10 börn, en misstu eitt þeirra á fyrsta ári þess. Þau bjuggu í Hjálmholti við Urðaveg 34 og í Fagurhól við Strandveg 55.
Sigurður eignaðist barn með Mörtu 1938.

I. Kona hans var Kristín Sigurðardóttir húsfreyja, f. 6. október 1906, d. 27. maí 1981.
Börn þeirra:
1. María Sigþrúður Sigurðardóttir húsfreyja, verslunamaður, f. 14. september 1922, d. 4. maí 2005. Maður hennar Magnús Benjamínsson.
2. Karl Emil Sigurðsson vélstjóri, f. 8. janúar 1924, d. 18. nóvember 2010. Kona hans Helga Þorkelsdóttir
3. Jórunn Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 27. október 1925, d. 3. ágúst 1967. Maður hennar Ólafur Erlendsson.
4. Óskar Sigurðsson, f. 19. maí 1927.
5. Rafn Sigurðsson sjómaður, leigubifreiðastjóri, f. 29. mars 1929, d. 27. ágúst 1988. Fyrrum kona hans Lene Ebbesen. Fyrrum kona hans Fanney Sigurjónsdóttir.
6. Jón Sigurðsson, f. 1. febrúar 1931, d. 4. apríl 1931.
7. Erna Guðmundína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 16. maí 1932, d. 6. apríl 2022. Fyrri maður hennar var Björgvin Óskarsson, látinn. Síðari maður hennar Kristinn Jónsson.
8. Ásta Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1933, d. 9. mars 2022. Barnsfaðir hennar Ragnar Runólfsson. Maður hennar Garðar Ásbjörnsson.
9. Oddný Fjóla Sigurðardóttir húsfreyja, f. 13. október 1936. Maður hennar Bernharð Ingimundarson.
10. Valgerður Jóna Sigurðardóttir, f. 15. desember 1942. Maður hennar Rúnar Eiríkur Siggeirsson.

II. Barnsmóðir Sigurðar var Marta Sveinbjörnsdóttir frá Eyjólfsstöðum í Fossárdal, Berufirði, f. 11. júlí 1908, d. 20. janúar 1999.
Barn þeirra:
11. Ágúst Heiðar Sigurðsson, f. 23. október 1938, d. 24. maí 2008. Kona hans Sigrún Júlíusdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.