Sigurður Bjarnason (Svanhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. febrúar 2021 kl. 11:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. febrúar 2021 kl. 11:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Sigurður Gísli Bjarnason á Sigurður Bjarnason (Svanhól))
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Bjarnason
Þórdís Guðjónsdóttir, Sigurður Bjarnason maður hennar, útgerðamaður og skipstjóri frá Hlaðbæ og sonur þeirra Jóhann. Maí 1931.

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sigurður Bjarnason


Sigurður Gísli Bjarnason fæddist 14. nóvember 1905 og lést 5. október 1970. Foreldrar hans voru Halldóra Jónsdóttir og Bjarni Einarsson frá Hlaðbæ.

Eiginkona Sigurðar var Þórdís Guðjónsdóttir. Þau bjuggu í Svanhól við Austurveg.

Sigurður var formaður með mótorbátinn Kára.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Sigurð:

Kára stýrir svaða sjó
Siggi hlýr á vanga,
löngum skýr á þara þró
þorsk órýr að fanga.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Greiðan Riddarann reiða
ræsir á hranna glæsi,
Siggi minn, sjó við dyggur,
svinnur netlinginn, finnur.
Borinn er Bjarna þorinn,
bænum frá Hlaðbæ væna.
Öldur þó grimmar gnöldri,
greppurinn aflann hreppir.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.