Sigríður Guðlaugsdóttir (húsfreyja)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Guðlaugsdóttir frá Ásavegi 25, húsfreyja fæddist 4. maí 1945 á Eystri-Oddsstöðum í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Guðlaugur Guðjónsson frá Oddsstöðum, trésmíðameistari, forstjóri, f. 2. júní 1919, d. 2. júní 2008, og kona hans Anna Pálína Sigurðardóttir frá Neskaupstað, húsfreyja, f. 30. ágúst 1920, d. 5. desember 2004.

Börn Önnu og Guðlaugs:
1. Guðjón, f. 4. desember 1940. Fyrrum kona hans Guðrún Margrét Guðjónsdóttir. Kona hans Helga Katrín Sveinbjörnsdóttir.
2. Sigríður, f. 4. maí 1945, gift Sigurgeiri Þór Sigurðssyni.
3. Guðrún, f. 1. febrúar 1953, gift (skildu) Henrý Henriksen.
4. Inga Hrönn, f. 4. nóvember 1958, gift Birki Agnarssyni.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Sigurgeir giftu sig, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu við Ásaveg 25, síðar í Rvk.

I. Maður Sigríðar er Sigurgeir Þór Sigurðsson, sjómaður, trésmíðameistari, f. 29. júní 1946.
Börn þeirra:
1. Anna Sigurgeirsdóttir, f. 19. desember 1964 í Eyjum. Barnsfaðir hennar Jón Freyr Snorrason. Maður hennar Jóhann Bergmann Loftsson.
2. Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, f. 31. janúar 1967 í Eyjum. Maður hennar Hlöðver Már Brynjarsson.
3. Sindri Sigurgeirsson, rennismiður, f. 14. mars 1976 í Rvk. Fyrrum sambúðarkona Kristín Guðmundsdóttir.
4. Guðlaugur Sigurgeirsson húsasmiður, f. 10. október 1978 í Rvk, d. 11. apríl 2020. Barnsmóðir hans Aislen Þóra Þórarinsdóttir.
5. Sólrún Sigurgeirsdóttir, f. 23. febrúar 1981 í Rvk. Sambúðarmaður hennar Reynir Jónsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.