Sigríður Gísladóttir (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigríður Gísladóttir.

Sigríður Gísladóttir frá Héðinshöfða, húsfreyja fæddist 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði og lést 6. janúar 2024.
Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1913, d. 9. október 1995.

Börn Ásdísar og Gísla:
1. Unnur Gísladóttir húsfreyja á Akureyri og í Reykjavík, f. 10. ágúst 1934 í Reykjavík.
2. Haukur Gíslason vélstjóri í Eyjum, f. 29. október 1935 á Stóru-Heiði, d. 2. mars 1980.
3. Garðar Gíslason skósmiður í Kópavogi, f. 3. mars 1937 á Stóru-Heiði.
4. Guðrún Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði.
5. Sigríður Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði, d. 6. janúar 2024.
6. Gísli Gíslason bóndi á Geldingalæk á Rangárvöllum, f. 15. mars 1940 í Birtingarholti.
7. Þóra Gísladóttir, f. 6. ágúst 1941 í Héðinshöfða, d. 1. mars 1944.
8. Guðmundur Gíslason sjómaður, f. 2. nóvember 1942 í Héðinshöfða, d. 5. nóvember 1968.
9. Halldóra Gísladóttir, f. 20. júlí 1944 í Héðinshöfða, hrapaði til bana úr Hánni 17. maí 1954.
10. Sigurlaug Gísladóttir húsfreyja, f. 12. janúar 1946 í Héðinshöfða, d. 9. nóvember 2022.
11. Stefán Gíslason, f. 21. október 1948 í Héðinshöfða, d. af slysförum 22. apríl 1966.
12. Ólafur Gíslason verkstjóri, f. 12. nóvember 1949 í Héðinshöfða.
13. Kristrún Gísladóttir húsfreyja, f. 2. mars 1952 í Héðinshöfða.
14. Halldóra Gísladóttir húsfreyja, kennari, f. 30. september 1955 í Héðinshöfða.
15. Þóra Gísladóttir húsfreyja, f. 5. mars 1957 í Héðinshöfða.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann við fiskiðnað og ýmis störf á Landi.
Sigríður eignaðist barn með Andrési 1958.
Þau Guðni bjuggu saman við Hólagötu 4 við fæðingu Benedikts Þórs 1962, giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Brattlandi við Faxastíg 19.
Sigríður lést 2024.

I. Barnsfaðir Sigríðar var Andrés Gunnlaugur Ólafsson frá Laugabóli í Mosfellsbæ, garðyrkjubóndi, f. 27. ágúst 1938, d. 17. febrúar 1999.
Barn þeirra:
1. Ásdís Andrésdóttir, f. 17. maí 1958 í Héðinshöfða.

II. Maður Sigríðar er Guðni Benediktsson vélsmiður, f. 14. október 1938.
Börn þeirra:
2. Benedikt Þór Guðnason, f. 8. mars 1962 á Hólagötu 4. Sambúðarkona hans Þuríður Matthíasdóttir.
3. Steindór Guðnason, f. 21. júlí 1964. Kona hans Hildur Arnardóttir.
4. Gísli Guðnason, f. 25. september 1965. Kona hans Vilborg Sigurðardóttir.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.