Sigfús Jörundur Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. nóvember 2006 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. nóvember 2006 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigfús Jörundur Árnason Johnsen

Sigfús fæddist í Vestmannaeyjum 25. nóvember 1930 og lést 2. nóvember 2006. Foreldrar hans voru Margrét Marta Jónsdóttir (fædd að Kirkjulandi í Landeyjum 5. mars 1895, dáin 15. maí 1948) og Árni J. Johnsen (fæddur í Fridendal 13. október 1892, dáinn 15. apríl 1963).

Eftir brautskráningu frá Verslunarskóla Íslands og kennarapróf gerðist Sigfús kennari og síðar yfirkennari við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum.

Eftir flutning til Reykjavíkur 1969 starfaði hann lengst af sem kennari við Vogaskóla og síðar félagsmálastjóri í Garðabæ.

Hann var virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins frá unga aldri og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á þeim vettvangi, s.s. formennsku Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, varaformennsku í Sambandi ungra sjálfstæðismanna, varaþingmennsku fyrir Suðurlandskjördæmi og formennsku í félagi sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi í Reykjavík.

Sigfús var frumkvöðull í ferða- og samgöngumálum á yngri árum, stofnaði Eyjaflug til að bæta samgöngur milli lands og Eyja og stofnaði og rak ferðaskrifstofu frá Vestmannaeyjum sem þúsundir landsmanna nýttu. Sigfús var fram eftir aldri virkur bjargveiðimaður í Eyjum og var kjörinn heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Bjarnareyinga 2004. Sigfús var virkur í starfi Freeport-klúbbsins og formaður hans um tíma. Þá starfaði Sigfús um árabil í Gideon-hreyfingunni.

Eftirlifandi eiginkona Sigfúsar er Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir. Börn þeirra eru Þorsteinn Ingi, Árni, Gylfi, Margrét, Þór og Sif.


Heimildir

  • Morgunblaðið, 4. nóvember 2006.