„Sigfús Jörundur Johnsen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 14: Lína 14:

Sigfús var frumkvöðull í ferða- og samgöngumálum á yngri árum, stofnaði Eyjaflug til að bæta samgöngur milli lands og Eyja og stofnaði og rak ferðaskrifstofu frá Vestmannaeyjum sem þúsundir landsmanna nýttu. Sigfús var fram eftir aldri virkur bjargveiðimaður í Eyjum og var kjörinn heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi [[Bjarnarey|Bjarnareyinga]] 2004. Sigfús var virkur í starfi Freeport-klúbbsins og formaður hans um tíma. Þá starfaði Sigfús um árabil í [[Gídeonfélagið|Gideon-hreyfingunni]].
Sigfús var frumkvöðull í ferða- og samgöngumálum á yngri árum, stofnaði Eyjaflug til að bæta samgöngur milli lands og Eyja og stofnaði og rak ferðaskrifstofu frá Vestmannaeyjum sem þúsundir landsmanna nýttu. Sigfús var fram eftir aldri virkur bjargveiðimaður í Eyjum og var kjörinn heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi [[Bjarnarey|Bjarnareyinga]] 2004. Sigfús var virkur í starfi Freeport-klúbbsins og formaður hans um tíma. Þá starfaði Sigfús um árabil í [[Gídeonfélagið|Gideon-hreyfingunni]].
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: [[Ritverk Árna Árnasonar/Sigfús Jörundur Johnsen]].
{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Morgunblaðið, 4. nóvember 2006.}}
* Morgunblaðið, 4. nóvember 2006.}}

=Frekari umfjöllun=
'''Sigfús Árnason Johnsen''' kennari og bjargveiðimaður frá [[Suðurgarður|Suðurgarði]], fæddist  25. nóvember 1930 og lést 2. nóvember 2006.

Foreldrar hans voru [[Árni J. Johnsen|Árni H. Johnsen]] frá [[Frydendal]], f. 13. október 1892, d. 15. apríl 1963, og kona hans [[Margrét Marta Jónsdóttir Johnsen|Margrét Marta]] húsfreyja og kaupkona frá [[Suðurgarður|Suðurgarði]], f. 5. mars 1895 á Kirkjulandi í A-Landeyjum, d. 15. maí 1948.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Sigfús er hár vexti og þrekinn, svarthærður, en ljós í andliti, föngulegur á velli og fríður sýnum. Hann er sterkur vel og stórlimaður, enda handtakagóður í allri vinnu. Hann er léttur í lund, kátur og hýr, skemmtilegur í viðræðum og víða vel heima. Hann er námsmaður góður, enda gengið menntaveginn og starfar sem kennari við [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyju|gagnfræðaskóla Eyjanna]] við góða dóma nemenda og samstarfsmanna.

Hann er ekki gamall í veiðimannastéttinni, en hefir náð þar góðum árangri og fer vel fram, efalaust mikið veiðimannsefni. Aðrar veiðar hefir hann stundað og eggjaferðir í margar úteyjarnar og hvarvetna við góðan vitnisburð sem mjög góður liðsmaður.

Hann er söngvinn sem ættmenn hans margir, brosmildur og góður félagi, sem lífgar upp í umhverfi sínu. Hann er einn af þeim, sem menn ósjálfrátt bera fullt traust til og  finnst málum og athöfnum vel borgið í hans umsjá. Hann er framarlega í allri starfsemi bjargveiðimanna og félagsskap þeirra, traustur og ósérhlífinn.

{{Árni Árnason}}
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Heimaslóð.
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.}}

Núverandi breyting frá og með 14. ágúst 2013 kl. 22:11

Sigfús

Sigfús Jörundur Árnason Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum 25. nóvember 1930 og lést 2. nóvember 2006. Foreldrar hans voru Margrét Marta Jónsdóttir (fædd að Kirkjulandi í Landeyjum 5. mars 1895, dáin 15. maí 1948) og Árni J. Johnsen (fæddur í Frydendal 13. október 1892, dáinn 15. apríl 1963).

Eftirlifandi eiginkona Sigfúsar er Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir. Börn þeirra eru Þorsteinn Ingi, Árni, Gylfi, Margrét, Þór og Sif.

Nám og störf

Eftir brautskráningu frá Verslunarskóla Íslands og kennarapróf gerðist Sigfús kennari og síðar yfirkennari við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum.

Eftir flutning til Reykjavíkur 1969 starfaði hann lengst af sem kennari við Vogaskóla og síðar félagsmálastjóri í Garðabæ.

Félagsstörf

Hann var virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins frá unga aldri og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á þeim vettvangi, s.s. formennsku Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, varaformennsku í Sambandi ungra sjálfstæðismanna, varaþingmennsku fyrir Suðurlandskjördæmi og formennsku í félagi sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi í Reykjavík.

Sigfús var frumkvöðull í ferða- og samgöngumálum á yngri árum, stofnaði Eyjaflug til að bæta samgöngur milli lands og Eyja og stofnaði og rak ferðaskrifstofu frá Vestmannaeyjum sem þúsundir landsmanna nýttu. Sigfús var fram eftir aldri virkur bjargveiðimaður í Eyjum og var kjörinn heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Bjarnareyinga 2004. Sigfús var virkur í starfi Freeport-klúbbsins og formaður hans um tíma. Þá starfaði Sigfús um árabil í Gideon-hreyfingunni.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Sigfús Jörundur Johnsen.

Heimildir

• Morgunblaðið, 4. nóvember 2006.