Sigfús Árnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2005 kl. 16:09 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2005 kl. 16:09 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigfús Árnason, bóndi að Löndum. Alþingismaður Vestmannaeyja 1892 til 1893.Hann var fæddur á Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum 10. september 1856. Dáinn þar 5. júní 1922. Foreldrar hans voru Árni Einarsson bóndi á Vilborgarstöðum og alþingismaður og kona hans Guðfinna Jónsdóttir K. (10. júní 1882). Kona Sigfúsar var Jónína Kristín Nikolína (fædd 14. ágúst 1856, dáin 16. nóvember 1906) dóttir Brynjólfs Jónssonar alþingismanns og prests að Ofanleiti og konu hans Ragnheiðar Jónsdóttur. Sigfús var bóndi að Löndum í Vestmannaeyjum og jafnframt póstafgreiðslumaður og kirkjuorganleikari við Landakirkju. Hann fór vestur um haf árið 1904 og dvaldist þar í Selkirk í Manitoba til 1915. Sigfús kom aftur til landsins og gerðist póstafgreiðslumaður í Vestmannaeyjum að nýju og stundaði það starf til æviloka.


Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930