Sigfús Árnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. júní 2005 kl. 10:54 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. júní 2005 kl. 10:54 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigfús Árnason, bóndi að Löndum. Alþingismaður Vestmannaeyja 1892 til 1893. Fæddur á Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum 10. september 1856. Dáinn þar 5. júní 1922. Foreldrar Árni bóndi þar og alþingismaður Einarsson og kona hans Guðfinna Jónsdóttir K. (10. júní 1882) Jónína Kristín Nikolína (fædd 14. ágúst 1856, dáin 16. nóvember 1906) Brynjólfsdóttir alþingismanns og prests að Ofanleiti Jónssonar og konu hans Ragnheiðar Jónsdóttur. — Bóndi að Löndum í Vestmannaeyjum og jafnframt póstafgreiðslumaður og kirkjuorganleikari við Landakirkju. Fór 1904 vestur um haf og dvaldist þar í Selkirk í Manitoba til 1915. Kom aftur til landsins og gerðist póstafgreiðslumaður í Vestmannaeyjum að nýju og stundaði það starf til æviloka.


Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930