„Sigfús Árnason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (flokkur fólk)
Lína 6: Lína 6:
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
}}
}}
 
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Þingmenn]]

Útgáfa síðunnar 19. janúar 2006 kl. 11:07

Sigfús Árnason, bóndi og alþingismaður.

Sigfús Árnason, bóndi að Löndum, var alþingismaður Vestmannaeyja frá 1892 til 1893. Hann var fæddur á Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum 10. september 1856. Dáinn þar 5. júní 1922. Foreldrar hans voru Árni Einarsson bóndi á Vilborgarstöðum og alþingismaður og kona hans Guðfinna Jónsdóttir K. (10. júní 1882). Kona Sigfúsar var Jónína Kristín Nikolína (fædd 14. ágúst 1856, dáin 16. nóvember 1906) dóttir Brynjólfs Jónssonar alþingismanns og prests að Ofanleiti og konu hans Ragnheiðar Jónsdóttur. Sigfús var bóndi að Löndum í Vestmannaeyjum og jafnframt póstafgreiðslumaður og kirkjuorganleikari við Landakirkju. Hann fór vestur um haf árið 1904 og dvaldist þar í Selkirk í Manitoba til 1915. Sigfús kom aftur til landsins og gerðist póstafgreiðslumaður í Vestmannaeyjum að nýju og stundaði það starf til æviloka.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.