Sesselja Vigfúsdóttir (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 14:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 14:19 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sesselja Kristín Vigfúsdóttir frá Miðhúsum fæddist 23. nóvember 1866 á Miðhúsum og lést 12. október 1957 í Utah.
Foreldrar hennar voru Vigfús Einarsson bóndi á Miðhúsum, f. 17. júlí 1838 á Loftsölum í Mýrdal, d. í Vesturheimi, og kona hans Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1834 í Fljótshlíð.
Þau fóru til Utah, Vigfús 1888, Guðrún 1889.

Sesselja var með foreldrum sínum meðan bæði voru í Miðhúsum. Faðir hennar fór vestur 1888 og á því ári var hún vinnukona á Fögruvöllum. Hún fór frá Mandal til Utah 1891.

Maður Sesselju Kristínar, (um 1897), var Árni Helgason frá Kornhól, f. 4. september 1848, d. 5. september 1916.
Barn hér:
1. Ellen, hafði próf frá ,,College University“.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur
  • Saga Íslendinga í Vesturheimi I-V. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, Tryggvi J. Oleson. Winnipeg: Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi: Menningarsjóður 1940-1953.
  • The Icelanders in Utah. La Nora Allsted.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.