Sara Hafsteinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sara Hafsteinsdóttir.

Sara Hafsteinsdóttir húsfreyja, sjúkraþjálfari fæddist 4. júní 1952 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Hafsteinn Ágústsson frá Varmahlíð við Vesturveg 18, húsasmíðameistari, f. 1. nóvember 1929, d. 21. apríl 2016, og fyrri kona hans Hrefna Guðbjörg Oddgeirsdóttir frá Stafnesi við Heiðarveg 31, húsfreyja, bókavörður, f. 1. ágúst 1931, d. 16. nóvember 2016.

Börn Hrefnu og Hafsteins:
1. Sara Hafsteinsdóttir húsfreyja, sjúkraþjálfari, f. 4. júní 1952 í Stafnesi. Maður hennar Þórólfur Guðnason.
2. Svava Hafsteinsdóttir húsfreyja, sérkennari við leikskóla, f. 26. ágúst 1953 í Stafnesi. Maður hennar Ólafur H. Sigurjónsson.
Barn Hrefnu og Eysteins Þorvaldssonar:
3. Oddgeir Eysteinsson, f. 24. febrúar 1960 í Stafnesi. Sambýliskona Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir.

Sara var með foreldrum sínum, en þau skildu.
Hún lauk námi í Institut for Terapiassistenter við Aarhús Universitet í Danmörku 1976.
Hún vann sjálfstætt í Danmörku frá júlí 1976 til maí 1977, á Borgarspítalanum frá september 1977 til ágúst 1981, hjá Sjálfsbjörgu á Akureyri frá september 1981 til ágúst 1982, á Borgarspítalanum frá september 1982 til júní 1985, á Borgarspítalanum (Sjúkrahúsi Reykjavíkur/Landspítalanum í Fossvogi) frá september 1990, síðan yfirsjúkraþjálfari á Landspítalanum.
Félags- og trúnaðarstörf:
Hún sat í stjórn Félags íslenskra sjúkraþjálfara (FÍSÞ) í þrjú ár upp úr 1980, var í fagnefnd félagsins 1997-1999, í skemmtinefnd þess 1984-1985, í stjórn Félags sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu (FSÖ) 2000-2001.
Þau Þórólfur giftu sig 1976, eignuðust tvö börn.

I. Maður Söru, (27. desember 1976), er Þórólfur Guðnason læknir, sóttvarnalæknir, f. 28. október 1953 á Hvolsvelli.
Börn þeirra:
1. Hafsteinn Þórólfson, f. 19. maí 1977.
2. Svavar Þórólfsson, f. 5. júní 1986.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga 2000.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sjúkraþjálfaratal. Ritstjórar: Steingrímur Steinþórsson, Ívar Gissurarson. Mál og mynd 2001.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.