„Sóli“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 26: Lína 26:
* '''Opnunartímar:'''
* '''Opnunartímar:'''
:Mán - Fös  7.30 - 17.30
:Mán - Fös  7.30 - 17.30





Útgáfa síðunnar 21. júní 2005 kl. 11:28

Húsið Sóli (stundum kallað Soli) stendur við Ásaveg 11.

Leikskólinn Sóli hefur verið starfræktur frá 1960 í gömlu þriggja hæða húsi (frá 1930). Húsið fékk í upphafi norska nafnið Sola en er í dag alltaf kallað Sóli og ber leikskólinn sama nafn. Fjöldi barna hér áður fyrr gat verið dálítið breytilegur og fór það eftir atvinnuástandi hve mörg þau voru. Gat barnafjöldinn orðið meiri en góðu hófi gegndi yfir há síldar og loðnuvertíðir.

Hjallastefnan var tekin upp í september 1998. Hjallastefnan byggir m.a. á jákvæðni, kærleika, einfaldleika, aga og jafnrétti. Kynjaskipting er í leikskólanum en markmið kynjaskipts leikskólastarfs er jákvæð kynjablöndun þar sem báðum kynjum er gert kleift að mætast á jafningjagrundvelli þar sem hvorugt kynið þarf að gjalda fyrir kyn sitt. Bæjaryfirvöld voru jákvæð og styrktu verkefnið í upphafi. Í apríl 2002 var opnaður þriðji kjarninn á Sóla. Ráðgert hafði verið að byggja í áföngum nýjan Sóla en fjármagn skorti og byggingunni frestað. Í staðinn var tekið á leigu húsnæði þar sem Hvítasunnusöfnuðurinn hafði til skamms tíma rekið leikskóla. Húsnæði þetta er ágætt en ansi langt er á milli kjarna.

Sóli er í dag þriggja kjarna skóli sem starfar samkvæmt Hjallastefnunni. Í skólanum eru börn á aldrinum 16 mánaða – 6 ára. Deildarstjórar eru: Á drengjakjarna Ingibjörg Þorsteinsdóttir, á stúlknakjarna Margrét Kjartansdóttir og á litla kjarna er Auður Karlsdóttir.


Tæknilegar upplýsingar

  • Heimilisfang:
Ásavegi 9
900 Vestmannaeyjar
  • Sími:
4811928
  • Fax:
4811318
  • Veffang:
www.vestmannaeyjar.is
  • Netfang:
soli@vestmannaeyjar.is
  • Leikskólastjóri:
Júlía Ólafsdóttir
  • Aðstoðarleikskólastjóri:
Margrét Brandsdóttir
  • Opnunartímar:
Mán - Fös 7.30 - 17.30


Litli-Sóli

  • Heimilisfang:
Faxastíg 6
900 Vestmannaeyjar
  • Sími:
4811958
  • Netfang:
soli2@vestmannaeyjar.is
  • Deildarstjóri:
Auður Karlsdóttir
  • Opnunartímar:
Mán - Fös 7.30 - 16.15

<meta:creator>Daníel St.</meta:creator> <meta:description>Leikskólinn Sóli</meta:description> <meta:source>www.vestmannaeyjar.is</meta:source>