Sílamáfur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júní 2006 kl. 15:45 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júní 2006 kl. 15:45 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Fuglar
Sjófuglar
Vaðfuglar
Mávar, kjóar, þernur
Andfuglar
Spörfuglar
Annað
Útdauðir fuglar

Sílamáfur (Larus fuscus)

  • Stærð: Sílamáfurinn er um 58 cm, um 0,8 kg að þyngd og vænghaf er 1,4 metrar.
  • Fæða: Sílamáfar lifa á fiskmeti, hræjum, úrgangi, skordýrum, ánamöðkum, sílum og einnig eru þeir eggja- og ungaþjófar.
  • Varpstöðvar: Varpland þeirra er við sjó eða inní landi þar sem yfirleitt eru sléttir móar, melar, sandar eða hraun. Sílamáfurinn er frekar félagslyndur fugl utan varptíma, en á varptímanum er hann það alls ekki, ekki einu sinni við fugla sömu tegundar.
  • Hreiður: Hreiðrið er oftast í lautum, klætt með sinu eða mosa og hjálpast hjónin að við að búa til hreiðrið og gæta eggjanna og ungans.
  • Egg: Þeir verpa oftast 3 eggjum í júní/júlí og er ásetutíminn um einn mánuður. Útlit eggjaskurnsins er mosagrænt eða rauðbrúnleitt en oftast grá- og brúnröndótt.
  • Aðrar upplýsingar: Sílamáfurinn er af mávaætt. Hann er dökksteingrár á baki og vængjum, vængbroddarnir eru dekkri en vængirnir. Hjúskapur þeirra en einkvæni, karlfuglinn finnur sér maka með því að finna sér góðan varpstað, helga sér það og bjóða svo tilvonandi maka til sín líkt og silfurmáfurinn gerir. Unginn er í hreiðrinu í 30-40 daga, en verður svo fleygur á rúmum mánuði. Sílamáfurinn verður kynþroska 3-6 ára gamall.