Ritverk Árna Árnasonar/Vestur með Skönsum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. október 2013 kl. 15:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. október 2013 kl. 15:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: <br> <br> <br> <center> Úr fórum Árna Árnasonar</center> <big><big><center> Vestur með Skönsum.</center></big> <center>Gömul sögn úr Eyjum </center></big> Á ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit




Úr fórum Árna Árnasonar


Vestur með Skönsum.
Gömul sögn úr Eyjum


Á síðust öldum hafa orðið stórfelldar breytingar á landslagi á Heimaey. Skriður hafa fallið úr fjöllum og eytt öllum grösugum hlíðum og undirlendi meðfram hlíðunum. Eru þar nú malarskriður og stórgrýtisurð, sem áður voru grösugir hagar fyrir sauðfénað og nautpening.
Vigfús Bergsson bjó í Stakkagerði um miðja síðustu öld, (drukknaði árið 1845), eftir föður sinn. Kona hans hét Sigríður Einarsdóttir, ættuð undan Eyjafjöllum. Andaðist hún árið 1897, 97 ára að aldri.
Á elliárum sínum sagði hún Vigfúsi Jónssyni í Holti, sonarsyni sínum, frá því, að þegar hún var 18 ára gömul, flutti hún út í Eyjar, vinnukona til séra Jóns Högnasonar á Ofanleiti, hefðu grösugar hlíðar verið „vestur með Skönsum“. Kýr hefðu þá verið reknar þangað á beit og hefðu þær á kvöldin komið Náttmálaskarð. Nú eru þarna skriður og stórgrýti, sem fallið hefur úr Stóra- og Litla-Klifi og mjög illt yfirferðar. Verður að stika þar á stórgrýtinu. Að norðanverðu er engum manni fært upp Náttmálaskarð, hvað þá skepnu, - eru þar nú brattir og lausir bergfláar úr stuðluðu blágrýti, og er þar engum manni stætt.
Séra Jón Austmann segir í sóknarslýsingu sinni frá 1843, að sú sögn gangi þá, að undirlendið norðan Klifja hefði náð út fyrir Stóra Örn, en nú er hann 2-300 metra frá ströndinni. Hafi landskjálftar og sjávargangur brotið graslendi þetta burt. Síðan bætir hann við: „Áttu þá kýrnar að hafa verið reknar gegnum svokallað Náttmálaskarð, sem aðgreinir Litla-Klifið frá Dalfjalli, - en nú eru þar norðan á móti sandskriður og sumsstaðar hengiflug.“
Einnig sagði Sigríður, að í Flugum og Ofanleitishamri hefði á fyrstu árum sínum í Eyjum, allt verið grasi gróið, en nú eru þar grastær aðeins á víð og dreif. Hafa stór-hröp orðið á báðum stöðum, enda eru þar nú víðast hvar stórgrýtisurð undir hömrunum.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit