Ritverk Árna Árnasonar/Tómas M. Guðjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. ágúst 2013 kl. 22:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. ágúst 2013 kl. 22:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Tómas Maríus Guðjónsson''' frá Miðhúsum, kaupmaður og útgerðarmaður, fæddist 13. janúar 1887 og lést 14. júní 1958.<br> Foreldrar hans voru [[Guðjón Jónsson ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Tómas Maríus Guðjónsson frá Miðhúsum, kaupmaður og útgerðarmaður, fæddist 13. janúar 1887 og lést 14. júní 1958.
Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson frá Arnarhóli í Landeyjum, tómthúsmaður, formaður í Sjólyst, f. 1857, d. 13. október 1896 og kona hans Guðríður Bjarnadóttir húsfreyja, f. 22. ágúst 1855, d. 15. febrúar 1931.

Tómas var tvígiftur:
I. Fyrri kona Tómasar var Hjörtrós Hannesdóttir, f. 20. febrúar 1888, d. 16. mars 1926.
Börn Tómasar og Hjörtrósar:
1. Hannes skipstjóri, f. 17. júní 1913, d. 14. október 2003, kvæntur Kristínu Sigríði Jónsdóttur frá Hellissandi, f. 3. apríl 1919, d. 14. júní 2002.
2. Martin Brynjólfur útgerðarmaður og forstjóri, f. 17. júní 1915, d. 1. janúar 1976, kvæntur Gíslínu Berthu Gísladóttur húsfreyju frá Dalbæ, f. 1920, d. 23. apríl 2012.
3. Jóhannes bankaritari, f. 13. mars 1921, kvæntur Guðfinnu húsfreyju Stefánsdóttur frá Skuld, f. 8. júní 1923.

II. Síðari kona Tómasar var Sigríður Vilborg Magnúsdóttir frá Brekkum á Rangárvöllum, f. 4. október 1899, d. 18. september 1968.
Börn Tómasar og Sigríðar:
4. Magnea Rósa lyfjafræðingur og lyfsali, f. 20. september 1928, gift Gunnari Hafsteini Bjarnasyni verkfræðingi, f. 22. september 1927.
5. Gerður Erla húsfreyja og gjaldkeri, f. 21. febrúar 1933. Maður hennar er Lúkas Kárason, sjómaður og kennari, f. 29. ágúst 1931.
6. Bragi, f. 4. mars 1939, d. 2. ágúst 2002.

III. Barn Tómasar með Guðrúnu Árnadóttur húsfreyju frá Hurðarbaki í Flóa:
7. Guðjón Tómasson, f. 29. ágúst 1925, d. 2. desember 1977, kvæntur í Reykjavík.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Tómas er tæplega meðalmaður á hæð, en allþrekinn og feitlaginn í seinni tíð, skolhærður, en ljós yfirlitum, skapléttur og góður félagi, snar og léttur í hreyfingum og vel fylginn sér.
Hann var fyrr meir töluvert að veiðum, drjúgur aflamaður, fullur áhuga og viljafestu. Ekki náði hann fullkominni veiðileikni, áður en hann hætti að stunda veiðar, sem var snemma á aldri. Hann var mikið við eggja- og fuglatekju og þótti ágætur liðsmaður í hvívetna.
Lífsstarf hans hefir að mestu verið verslunarstörf, í Edinborg, og síðar afgreiðslumaður erlendra skipafélaga, umboðsmaður Shell og H. Benediktsson & Co í Reykjavík. Verslar sjálfur með byggingavörur, sement, járn o.m.fl.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Tómas M. Guðjónsson


Heimildir