Kristmundur Árnason (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 14:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 14:33 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Kristmundur Árnason frá Búastöðum fæddist 2. júlí 1872 og lést 19. desember 1935.
Foreldrar hans voru Árni Einarsson bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum, síðar á Búastöðum í Eyjum, f. 27. janúar 1827, og kona hans Helga Einarsdóttir húsfreyja, f. 1829.
Kristmundur var bróðir Ingvars Árnasonar í Hólshúsi og Einars Árnasonar frá Búastöðum.

Kristmundur var léttadrengur í Nýjabæ 1890, vinnuhjú í Hólshúsi 1901, ókvæntur. Í Hólshúsi var Helga dóttir hans í fóstri á því ári.

I. Kristmundur átti barn með Þóru Einarsdóttur frá Ormskoti undir Eyjafjöllum, f. 1855, d. 6. mars 1898.
Barnið var
Helga Kristmundsdóttir, f. 19. desember 1897, d. 3. maí 1977. Helga var gift Ormi Ormssyni, stofnanda firmans Ormsbræður hf. Þau gerðust síðar bændur í Hofgörðum í Staðarsveit og Laxárbakka í Miklaholtshreppi, en Ormur gerðist rafvirkjameistari í Borgarnesi 1946-dd. 1965.

Kristmundar er getið í bjargveiðimannatali Árna Árnasonar, en án sérstakrar umsagnar.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.