„Ritverk Árna Árnasonar/Jón Magnússon (formaður)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 5: Lína 5:
Foreldrar hans voru [[Magnús Eyjólfsson (Kirkjubæ)|Magnús Eyjólfsson]] frá Ystabæli undir Eyjafjöllum, smiður á Kirkjubæ, f. 17. mars 1860, d. 24. júlí 1940, og kona hans [[Guðlaug Guðmundsdóttir (Kirkjubæ)|Guðlaug Guðmundsdóttir]] húsfreyja, f. 27. maí 1855, d. 20. nóvember 1931.

Foreldrar hans voru [[Magnús Eyjólfsson (Kirkjubæ)|Magnús Eyjólfsson]] frá Ystabæli undir Eyjafjöllum, smiður á Kirkjubæ, f. 17. mars 1860, d. 24. júlí 1940, og kona hans [[Guðlaug Guðmundsdóttir (Kirkjubæ)|Guðlaug Guðmundsdóttir]] húsfreyja, f. 27. maí 1855, d. 20. nóvember 1931.

Kona Jóns var [[Hólmfríður Þórðardóttir (Kirkjubæ)|Hólmfríður]],  f. 24. september 1894 á Hesti í Borgarfirði, d. 9. desember 1968.

Kona Jóns var [[Hólmfríður Þórðardóttir (Kirkjubæ)|Hólmfríður Þórðardóttir]] húsfreyja,  f. 24. september 1894 á Hesti í Borgarfirði, d. 9. desember 1968.

Barn Hólmfríðar og Jóns hér:

Börn Hólmfríðar og Jóns hér:

[[Sigrún Jónsdóttir (Kirkjubæ)|Sigrún]], f. 23. október 1913, d. 9. desember 2002.

1. [[Sigrún Jónsdóttir (Kirkjubæ)|Sigrún Jónsdóttir]] húsfreyja, f. 23. október 1913, d. 9. desember 2002.

Maður hennar var [[Guðjón Jónsson (rakari)|Guðjón Jónsson]] rakari í Reykjavík og Húsavík, f. 23. janúar 1912, d. 16. janúar 1998. Faðir hans var [[Jón Guðlaugsson (lögregluþjónn)|Jón]] lögregluþjónn, síðar skósmiður á Akureyri, f. 5. maí 1872, d. 6. nóvember 1967, Guðlaugsson bónda í Hallgeirsey í A-Landeyjum Nikulássonar.

2. Magnús Jónsson, f. 2. maí 1916. Hann mun hafa dáið ungur.
Móðir Guðjóns var [[Guðrún Guðný Jónsdóttir]],  f. 10. janúar 1873, d. 9. september 1957, systir [[Steinvör Jónsdóttir (Nýjabæ)|Steinvarar í Nýjabæ]] og [[Ingibjörg Jónsdóttir (Suðurgarði)|Ingibjargar í Suðurgarði]]; - Jónsdætur Brandssonar formanns í Hallgeirsey og konu hans [[Guðrún Bergsdóttir (Svaðkoti)|Guðrúnar Bergsdóttur]].

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Lína 23: Lína 22:
*Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
*Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
*Manntöl.}}
*Manntöl.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}

Núverandi breyting frá og með 13. apríl 2016 kl. 21:51

Jón, Hólmfríður kona hans og Sigrún dóttir þeirra.

Kynning.

Jón Magnússon bóndi og formaður á Kirkjubæ, (Staðarbænum), síðan í Vallartúni, fæddist 10. október 1889 og lést 3. desember 1964.
Foreldrar hans voru Magnús Eyjólfsson frá Ystabæli undir Eyjafjöllum, smiður á Kirkjubæ, f. 17. mars 1860, d. 24. júlí 1940, og kona hans Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 27. maí 1855, d. 20. nóvember 1931.

Kona Jóns var Hólmfríður Þórðardóttir húsfreyja, f. 24. september 1894 á Hesti í Borgarfirði, d. 9. desember 1968.
Börn Hólmfríðar og Jóns hér:
1. Sigrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 23. október 1913, d. 9. desember 2002.
2. Magnús Jónsson, f. 2. maí 1916. Hann mun hafa dáið ungur.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Þau Hólmfríður og Jón Magnússon skildu samvistir nokkru eftir að þau fluttu úr Eyjum til Reykjavíkur og var sagt, að skilnaðurinn hefði orsakast af hernaðarlegum ástæðum. Jón hefir síðan verið við ýmis störf í Reykjavík, t.d. hjá nefnd setuliðseigna ríkisins. Þá hefir hann og verið fyrir norðan land við lundaveiðar, t.d. í Lundey utan við Húsavík.
Jón Magnússon var meðalmaður á hæð, svarthærður og liðlega vaxinn, hvítur í andliti.
Hann ólst upp í föðurhúsum og vandist þar fljótt við bjargferðir, eggja- og fuglatekju. Fór hann um allar úteyjar og heimalandið og er sagt, að hann hafi verið einn þeirra, er virtust klífa allt, fært og ófært, enda var hann liðugur eins og slanga og snar eins og pardus. Sigamaður var hann ágætur, prýðis félagi, en til baka – nærri feiminn. Hollvinur og ráðsnjall, reifur í sínum hóp og þá ræðinn og fróður. Eftirsjá er að honum úr Eyjum og hollt er heima hvað, sem óhollt er á öðrum stað.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Jón Magnússon (formaður)

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Íslendingabók.is.
• Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
• Manntöl.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.