„Ritverk Árna Árnasonar/Huldukona vitjar nafns“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: <br> <br> <br> <center> Úr fórum Árna Árnasonar</center> <big><big><center> Huldukona vitjar nafns </center></big></big> Stefán, sonur síra [[Jón Austm...)
 
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Huldukona vitjar nafns“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 8. október 2013 kl. 17:08




Úr fórum Árna Árnasonar


Huldukona vitjar nafns


Stefán, sonur síra Jóns Austmanns prests að Ofanleiti, bjó um tíma að Draumbæ hér í bæ. Kona hans var Anna Benediktsdóttir ljósmóðir, er síðar giftist Pétri Péturssyni í Vanangri, sem drukknaði 1910.
Stefán var vel gefinn og listaskrifari, en allmjög drykkfelldur. Drukknaði hann á Gauki 13. marz 1874, skammt eitt undan Beinakeldu fyrir ofhleðslu.
Formaður á Gauki var Sighvatur faðir Bjargar, sem nú, 1938, býr í Gilsbakka.
Voru þeir á Gauki á sjó austarlega í Flóanum, í skjóli af Bjarnarey, í kappnógum fiski og hafði Stefán varað við því að ofhlaða ekki, en engu fengið áorkað. Drukknaði Stefán og sex aðrir, en formaðurinn og tveir aðrir komust af.
Meðan þau Anna og Stefán bjuggu í Draumbæ, eignuðust þau dóttur, efnilegasta barn. Skömmu áður en skíra átti barnið, kom kona til Önnu í draumi og bað hana um að láta barnið heita Ágústu. Engu þóttist Anna lofa um það í draumnum. Nóttina áður en skíra átti dreymdi Önnu enn hina sömu konu og bað hún hana að nýju að skíra barnið Ágústu. Þóttist þá Anna spyrja konuna, hver hún væri og kvaðst hún vera huldukona. Neitaði Anna þá þverlega að skíra barnið að bón hennar, því að hún var þá þegar ákveðin í að láta barnið heita öðru nafni.
Um morguninn, þegar fólk vaknaði í Draumbæ, sá það, að skrifað hafði verið á baðstofuhurðina: „Láttu barnið heita Ágústu‟. Svo var letrið fast á hurðinni, að það varð ekki þurrkað af. Lét Stefán bóndi höggva það burtu, og bar hurðin þess alla tíð merki síðan, meðan hún entist. Sá Sæmundur Ingimundarson, nú bóndi í Draumbæ, hurðina í æsku sinni og eru honum axarhöggin í henni enn minnisstæð.
Daginn eftir var síra Jón Austmann, faðir Stefáns, sóttur til að skíra barnið og fór skírnin fram eins og ákveðið hafði verið og var barnið ekki látið heita Ágústa. Þegar síra Jóni var sagt frá draumum Önnu og letrinu á hurðinni, varð honum að orði, að hann mundi hafa skírt barnið Ágústu, hvað sem Anna hefði sagt, ef hann hefði vitað um þetta.
Árið eftir eignaðist Anna barn að nýju og var sagt, að engin mannsmynd hefði á því verið og var það sögn mjög orðvarra manna, sem sáu það barn. Dó það strax eftir fæðinguna. Jóhann, sonur þeirra hjóna, hrapaði til dauðs, 11 ára gamall í Hamrinum 23. júní 1865. Annar sonur þeirra Stefáns og Önnu hét einnig Jóhann. Komst hann til aldurs og átti heima í Jóhannshúsi. Var hann mjög fatlaður og ekki eins og fólk er flest. Hann dó 1918. Talið var að barnaólán þeirra hjóna hefði stafað af því, að Anna varð ekki við tilmælum draumkonu sinnar, huldukonunnar.
Þau Stefán og Anna flosnuðu upp frá Draumbæ árið 1869, en áður hafði J.P.T. Bryde kaupmaður tekið af honum allar eigur hans upp í verslunarskuldir. Fluttu þau hjón þá að Vanangri.
Ofangreindan atburð frá draumum sínum sagði Anna sjálf Ragnheiði í Svaðkoti, en vinnufólkið í Draumbæ sagði henni frá letrinu á hurðinni.
Guðríður Bjarnadóttir, dóttir Ragnheiðar í Svaðkoti, er heimildarkona mín að mestu, en Sæmundur Ingimundarson núverandi bóndi í Draumbæ að nokkru leyti.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit