„Ritverk Árna Árnasonar/Guðmundur Þórarinsson (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Guðmundur Þórarinsson (Vesturhúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip

Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Guðmundur Þórarinsson á Vesturhúsum.jpg|250px|thumb|''Guðmundur Þórarinsson.]]
'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Guðmundur Þórarinsson fór snemma að nytja jörð sína Vesturhús til hins ýtrasta og þurfti líka alls við á þeim tímum.

Guðmundur Þórarinsson fór snemma að nytja jörð sína Vesturhús til hins ýtrasta og þurfti líka alls við á þeim tímum.

Núverandi breyting frá og með 24. september 2013 kl. 15:35

Guðmundur Þórarinsson.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Guðmundur Þórarinsson fór snemma að nytja jörð sína Vesturhús til hins ýtrasta og þurfti líka alls við á þeim tímum.
Fuglaveiðar voru þá mjög stundaðar og gerðist Guðmundur brátt mjög duglegur veiðimaður með þess tíma veiðitækjum, svo sem greflum og netum. Þá var hann mjög við eggjatöku, fýla- og súlutekjur og þótti alls staðar mjög liðtækur bjargveiðimaður. Lítt komst hann á að veiða með háf, þótt hins vegar iðkaði hann það sem aðrir. Er mér sagt, að hann hafi verið miðlungur í veiði með háf, en ástundunarsamur og fullur áhuga. Var hann nær þrítugu, er háfurinn fór að tíðkast og var honum, sem fleirum, gamla veiðiaðferðin tamari.
Hann var bústólpi, kátur og léttur í lund og á velli, hár og þrekinn og snemma alskeggjaður, fríður ásýndum.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Guðmundur Þórarinsson (Vesturhúsum) og
Blik 1969: Vesturhúsfeðgarnir.

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit