„Ritverk Árna Árnasonar/Guðjón Scheving“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''''<big>Úr fórum Árna Árnasonar símritara: <br>Bjargveiðimannatal.</big>'''''<br> Guðjón var nokkur sumur í Elliðaey.<br> Guðjón er maðu...)
 
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Guðjón Scheving“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 17. ágúst 2013 kl. 15:00

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Guðjón var nokkur sumur í Elliðaey.
Guðjón er maður meðalhár, skolhærður, fremur breiðleitur, allþrekinn og frísklegur á velli, hátt enni og kinnbein. Hann er skapléttur og brosmildur, vel gefinn að gáfum, ræðumaður allsleipur og hefir gefið sig nokkuð að stjórnmálum með sjálfstæðismönnum.
Guðjón var nokkuð til fuglaveiða fyrr á árum, allgóður liðsmaður á þeim vettvangi.
Veiðimaður hefði hann eflaust getað orðið, en hætti fuglaferðum, áður en hann næði verulegri leikni. Guðjón fær gott orð yfirleitt, er málari að iðn, fær í sínu fagi.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Guðjón Scheving


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.