„Ritverk Árna Árnasonar/Gísli Eyjólfsson (eldri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''''<big>Úr fórum Árna Árnasonar símritara: <br>Bjargveiðimannatal.</big>'''''<br> Gísli var rúmlega meðalmaður á hæð, dökkhærður, vel...)
 
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Gísli Eyjólfsson (eldri)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 17. ágúst 2013 kl. 15:03

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Gísli var rúmlega meðalmaður á hæð, dökkhærður, vel þrekinn, snar og sterkur, eins og þeir bræður allir, einbeittur svipur og mannlegt andlit, máske lítið eitt hörkulegt, en línuhreint.
Fremur var Gísli daufgerður í lund gegnt almenningi, en gat verið í sínum félagsskap kátur vel og skemmtilegur viðræðu. Hann var um of hlédrægur og ómannblendinn og virkaði því daufur í daglegri framkomu. Hann var sérlega sögufróður maður.
Gísli var afbragðs fjallamaður og meðalgóður fuglaveiðimaður, kappsfullur og viljafastur, enda var hlutur hans af veiðum eftir því. Gísli var mest í Elliðaey til lunda, en fór þó um flestar úteyjar og síðast um Heimalandið til eggja og annarra fuglaveiða. Harðduglegur maður, sem fátt eitt lét sér fyrir brjósti brenna í bjargferðum.
Gísli var bóndi, dugandi formaður, fengsæll og glöggur maður á mörgum sviðum.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Gísli Eyjólfsson (eldri)


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir