Ritverk Árna Árnasonar/Friðrik Ásmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 12:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 12:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Friðrik Ásmundsson''' skipstjóri, skólastjóri, fæddur 26. nóvember 1934. <br> Foreldrar hans voru Ásmundur Karl Friðriksson skipstjóri og framk...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Ásmundsson skipstjóri, skólastjóri, fæddur 26. nóvember 1934.
Foreldrar hans voru Ásmundur Karl Friðriksson skipstjóri og framkvæmdastjóri á Löndum, síðar í Keflavík, f. 31. ágúst 1910, d. 17. nóvember 1963, og fyrri kona hans Elísa Olga Magdal Pálsdóttir húsfreyja frá Reykjavík, f. 2. september 1907, d. 7. nóvember 1945.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Friðrik er hár vexti og þrekinn, fríður sýnum, svarthærður. Hann er stilltur og prúður í daglegri umgengni, en er annars kátur og skemmtilegur piltur og besti drengur í félagsskap. Hann er lítt vanur veiðum, en virðist ætla að verða góður veiðimaður, ef hann heldur áfram. Hann er vel styrkur, snöggur í snúningum og ósérhlífinn við vinnu.
Hann hefir verið til sjós með föður sínum á togurum, en er nú í millilandasiglingum á fragtskipum, mjög vel látinn af öllum. Hefir nú síðari ár verið í sjómannaskólanum í Reykjavík.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Friðrik Ásmundsson


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir