Ritverk Árna Árnasonar/Einar Árnason (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. ágúst 2013 kl. 15:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. ágúst 2013 kl. 15:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Einar Árnason''', fæddist 25. mars 1862 og lést 24. ágúst 1902.<br> Foreldrar hans voru Árni Einarsson bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum,...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Árnason, fæddist 25. mars 1862 og lést 24. ágúst 1902.
Foreldrar hans voru Árni Einarsson bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum, síðar á Búastöðum, f. 27. janúar 1827 og kona hans Helga Einarsdóttir húsfreyja, f. 1829.

Einar var bróðir Ingvars í Hólshúsi og Kristmundar Árnasonar föður Helgu í Hólshúsi.

Kona Einars (1894) var Jónína Árnadóttir, f. 12. janúar 1864 að Holti í Mýrdal, d. 2. júní 1947. Einar var fyrri maður hennar.
Jónína varð bústýra Sigurðar Ólafssonar á Sjónarhól, f. 8. nóvember 1870 í Ossabæ í Landeyjum, d. 2. maí 1950.
Börn Einars og Jónínu voru:
1. Jóhanna, f. 23. mars 1898 á Húsavík, d. 29. nóvember 1979, giftist dönskum matreiðslumanni.
2. Guðrún, f. um 1894. Hún fór víða utanlands, til Noregs og Danmerkur.
3. Marinó, f. 27. september 1900 á Húsavík, d. 25. febrúar 1971. Hann var alinn upp í Hólshúsi hjá Gróu og Ingvari Árnasyni föðurbróður sínum.
4. Margrét, f. 17. október 1902 á Húsavík, d. 6. ágúst 1985.


Heimildir

  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
  • Garður.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.