Ritverk Árna Árnasonar/Dánarfregn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. september 2013 kl. 21:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. september 2013 kl. 21:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Ritverk Árna Árnasona/Dánarfregn á Ritverk Árna Árnasonar/Dánarfregn)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit




Úr fórum Árna Árnasonar


Við andlát Kjartans Jónssonar
bókbindara 3. desember 1940¹)


Hjartað þráir það ég sver,
þig minn kæri vinur.
Örlög valda að innst hjá mér
eitthvað berst og stynur.
Hæstu manna hylli naut
hetja í lífsins stríði.
Heiðarleikans hálu braut
hann gekk æ með prýði.
Stefndi að marki hljótt og hátt,
hlynnti að samtíðinni.
Engu, sem var ljótt og lágt,
laut hann nokkru sinni.

¹)Kjartan var sonur Jóns Eyjólfssonar og Sigríðar Sighvatsdóttur á Kirkjubæ og því bróðir Lofts Jónssonar á Vilborgarstöðum og hálfbróðir, af sömu móður, Júlíönu Sigurðardóttur á Búasatöðum.
Hann var alinn upp á Bústöðum hjá Júlíönu og Pétri Lárussyni. (Heimaslóð).


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit