Ritverk Árna Árnasonar/Böðvar Jónsson (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. desember 2021 kl. 11:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. desember 2021 kl. 11:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Böðvar Jónsson frá Háagarði, verksmiðjustjóri hjá Vinnufatagerð Íslands hf. og síðar hjá Föt hf., sem m.a. rak verslanir Andersen og Lauth. Hann var auk þess í stjórn ýmissa annarra fyrirtækja. Hann fæddist 8. desember 1911 í Holti í Álftaveri, V-Skaft., og lést 18. febrúar 1997.
Faðir hans var Jón Sverrisson yfirfiskimatsmaður í Eyjum, f. 22. janúar 1871 í Nýjabæ í Meðallandi, d. 5. mars 1968.
Móðir Böðvars og kona Jóns Sverrissonar var Sólveig Jónína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 2. ágúst 1879 í Fagradal Mýrdal, d. 21. apríl 1955.

Böðvar var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (22. febrúar 1936), var Steinunn Ágústa Magnúsdóttir húsfreyja frá Dal, f. 9. ágúst 1912, d. 24. júní 1960.
Börn Böðvars og Ágústu:
1. Jón Einar Böðvarsson iðnaðarverkfræðingur, f. 27. júlí 1936 í Stakkagerði.
2. Hrafnhildur Böðvarsdóttir húsfreyja, bókmenntafræðingur í Kanada, f. 28. október 1944. Maður hennar Eugene Krenciglowa
3. Magnús Böðvarsson læknir, f. 4. október 1949. Fyrrum kona Lovísa Fjeldsted. Sambúðarkona hans Ásta Sigurbrandsdóttir.
4. Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, fasteignasali, f. 22. nóvember 1951. Kona hans Anna Ó. Guðnadóttir.

II. Síðari kona Böðvars, (18. nóvember 1967), var Betsý Gíslína Ágústsdóttir húsfreyja, f. 28. nóvember 1919, d. 22. apríl 2016.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Böðvar er hár maður vexti og allþrekinn um herðar, en ekki holdamikill. Hann er skolhærður, langleitur, frekar fríður sýnum, glaður og reifur í tali, ágætis félagi og duglegur til vinnu.
Böðvar var ekki mikill veiðimaður, enda skorti hann þjálfun, en hann var iðinn og kappsfullur við veiðar. Hefði hann efalaust getað orðið góður veiðimaður, hefði hann haldið áfram veiðum. En hann flutti til Reykjavíkur og settist þar að og er nú hluthafi í Vinnufatagerð Íslands H/f, en hefir alveg lagt veiðarnar á hilluna. Hann var nokkur sumur í Álsey, kom sér þar vel, fullur kæti og gleðskapar og góður viðlegudrengur.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga ehf. 2000.
  • Manntöl.
  • Verkfræðingatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga ehf. 1996.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.