„Ritverk Árna Árnasonar/Ágúst Gíslason (Valhöll)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 27: Lína 27:
*Íslendingabók.is.  
*Íslendingabók.is.  
*Manntöl.}}
*Manntöl.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}

Útgáfa síðunnar 10. maí 2015 kl. 16:27

Ágúst Gíslason.

Kynning.

Ágúst Gíslason frá Hlíðarhúsi, síðar í Valhöll, fæddist 15. ágúst 1874 í Eyjum og lést 24. desember 1922.
Foreldrar hans voru Gísli Stefánsson kaupmaður í Hlíðarhúsum f. 28. ágúst 1842, d. 25. september 1903 og kona hans Soffía Lisbeth Andersdóttir, f. 8. október 1847, d. 10. júní 1936.

Kona Ágústs var Guðrún Þorsteinsdóttir, f. 25. desember 1875 í Eyjum, d. 24. ágúst 1928.

Börn Ágústs og Guðrúnar voru:
1. Rebekka húsfreyja, f. 24. mars 1899 í Hafnarfirði, d. 7. ágúst 1981, kona Sigurðar Ólafssonar verkfræðings.
2. Matthildur húsfreyja í Stakkagerði, tvíburi, f. 28. júlí 1900 í Eyjum, d. 18. júní 1984, kona Sigurðar Bogasonar.
3. Þorsteinn Ágústsson, tvíburi, f. 28. júlí 1900, d. 24. október 1901.
4. Soffía húsfreyja, f. 23. mars 1902 í Eyjum, gift í Danmörku, Erik Grönquist.
5. Ingibjörg húsfreyja, f. 14. júlí 1904 í Eyjum, d. 9. október 1951. Hún var gift á Hjalteyri.
6. Skarphéðinn, f. 17. september 1909 í Eyjum, d. 19. apríl 1957, kvæntur í Keflavík.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara: Bjargveiðimannatal.
Ágúst var einn af allra bestu fjallamönnum Eyjanna fyrr og síðar. Hann lagði veginn á Eldey með Stefáni bróður sínum og Hjalta Jónssyni frá Fossi, og mun afrek það lengi í minnum haft.
Ágúst lést af slysförum þannig, að hann fannst, fallinn í sjó, í fjörunni við gömlu bæjarbryggjuna 24. desember 1922, öllum harmdauði.
(sbr. nánar í bók Suðureyjar).


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ágúst Gíslason (Valhöll)


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.