Ritverk Árna Árnasonar/Ársæll Sveinsson (Fögrubrekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. nóvember 2022 kl. 13:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. nóvember 2022 kl. 13:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ársæll Sveinsson.

Kynning.
Ársæll Sveinsson á Fögrubrekku, fæddist 31. desember 1893 og lést 14. apríl 1969.
Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson trésmíðameistari frá Steinum undir Eyjafjöllum, f. 19. apríl 1862 í Steinum, d. 13. maí 1947, og kona hans Guðrún Runólfsdóttir húsfreyja, spítalahaldari og útgerðarkona, f. 26. nóvember 1860 í Stóra-Nýjabæ í Krýsuvíkursókn, Gull., d. 20. október 1949.

Kona Ársæls var Laufey Sigurðardóttir húsfreyja, f. 2. september 1895, d. 16. ágúst 1962.
Börn Laufeyjar og Ársæls:
1. Lárus, f. 9. maí 1914, d. 13. ágúst 1990.
2. Sveinn, f. 26. desember 1915, d. 3. febrúar 1968.
3. Guðrún Ársælsdóttir, f. 6. mars 1920, d. 21. september 1927.
4. Petrónella, f. 26. maí 1921, d. 30. október 2006.
5. Ásta Skuld Ársælsdóttir, f. 20. júní 1925, d. 6. mars 1928.
6. Ásta, f. 4. nóvember 1929, d. 2. nóvember 1977.
7. Leifur, f. 10. júlí 1931.
8. Guðný Lilja, f. 22. apríl 1933.
9. Ársæll, f. 8. apríl 1936.


Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Ársæll Sveinsson er rösklega meðalhár, ljóshærður og ljós yfirlitum, sterklega vaxinn, enda vel sterkur maður og harðger. Hann er mjög þrekinn og axlabreiður og hin seinni árin vel í hold kominn, kátur og léttur. Hann var lengi formaður og fiskinn vel, enda hinn mesti fullhugi og sókndjarfur.
Hann hefir komið mjög við sögu bæjarmálanna hin síðari ár og barist ótrauður í flokki sjálfstæðismanna, fylginn sér um málefni, stefnuna og tekið virkan þátt í verklegum framkvæmdum bæjarins.
Hann rekur verslun og útgerð í stórum stíl og skipasmíðastöð.
Ársæll var prýðis góður veiðimaður og þekktur fyrir góðveiðar í Siggaflesi í Álsey, sló svo fast upp og hart að allt lék á reiðiskjálfi. En hann veiddi þarna vel og hafði yndi af staðnum. Hann er vissulega góður merkisberi Álseyjar.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ársæll Sveinsson (Fögrubrekku)


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.