Reynir Sigurlásson (Reynistað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. október 2021 kl. 14:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. október 2021 kl. 14:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: 250px|thumb|''Reynir Sigurlásson '''Reynir Sigurlásson''' frá Reynistað, sjómaður, matsveinn fæddist þar 6. ja...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Reynir Sigurlásson

Reynir Sigurlásson frá Reynistað, sjómaður, matsveinn fæddist þar 6. janúar 1946 og fórst 1. mars 1979.
Foreldrar hans voru Sigurlás Þorleifsson sjómaður, verkamaður, f. 13. ágúst 1893, d. 26. nóvember 1980, og kona hans Þuríður Vilhelmína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 31. október 1907, d. 27. júlí 1992.

Barn Þuríðar og Ólafs Jónssonar:
1. Margrét Sigurlaug Ólafsdóttir, f. 31. júlí 1926 í Djúpadal í Hvolhreppi, d. 13. apríl 2015.

Börn Þuríðar og Sigurláss:
2. Eggert Sigurlásson, f. 20. febrúar 1929 á Rafnseyri, (Kirkjuvegi 12), d. 29. ágúst 1978.
3. Þorleifur Sigurlásson, f. 16. mars 1930 á Rafnseyri, d. 31. júli 2021.
4. Anna Sigurlásdóttir, f. 18. janúar 1933 á Hálsi v. Brekastíg, d. 2. janúar 2010.
5. Kristín Sigurlásdóttir, f. 28. apríl 1935 á Reynistað, d. 27. október 2020.
6. Ásta Sigurlásdóttir, f. 5. febrúar 1937 á Reynistað, d. 29. mars 2015.
7. Ólöf Sigurlásdóttir, f. 11. janúar 1939 á Reynistað.
8. Jóna Sigurlásdóttir, f. 11. júlí 1940 á Reynistað, d. 10. febrúar 2018.
9. Gústaf Sigurlásson, f. 19. september 1941 á Reynistað.
10. Helgi Sigurlásson, f. 8. janúar 1944 á Reynistað.
11. Andvana drengur, tvíburabróðir Helga, f. 8. janúar 1944.
12. Reynir Sigurlásson, f. 6. janúar 1946 á Reynistað, d. 1. mars 1979.
13. Erna Sigurlásdóttir, f. 23. september 1947 á Reynistað, d. 19. júní 1989.
14. Margrét Sigurlásdóttir, f. 1. janúar 1949 á Reynistað.
15. Geir Sigurlásson, f. 1. apríl 1950 á Reynistað.
16. Linda Sigurlásdóttir, f. 5. mars 1955 á Reynistað.

Barn Sigurláss og fyrri konu hans Rannveigar Guðlaugar Magnúsdóttur:
1. Margrét Freyja Sigurlásdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 29. júní 1921, d. 6. mars 1960.

Börn Sigurláss og Aðalheiðar Gísladóttur:
2. Hulda Sigurlásdóttir, f. 2. apríl 1924. Hún var í Langagerði í Hvolhreppi 1930, d. 31. október 2017.
3. Baldur Sigurlásson sjómaður, f. 26. júlí 1926, d. 28. júlí 1980.

Reynir var með foreldrum sínum í æsku.
Hann sat matreiðslunámskeið Kokkaskólans í Ísfélaginu og var matsveinn til sjós, sem hann stundaði frá ungum aldri sínum.
Hann bjó á Faxastíg 60.
Reynir var skipverji á Ver VE 200, er hann fórst á siglingu af miðum 1. mars 1979.
Reynir var ókvæntur, en Unnusta hans var Erna Guðjónsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.