Reimleikar í Yztakletti

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 11:36 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 11:36 eftir Smari (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Jafnan hefur verið talið, að reimt væri í Yztakletti. Einhverju sinni var Guðrún Laugudóttir við heyskap í Yztakletti. Var hún þar ein manna, en hafði hund sinn með sér. Svaf hún í veiðimannabólinu, en hundurinn lá utandyra. Nótt eina vaknaði hún við hávaða mikinn út fyrir. Var hundurinn alveg trylltur. Er þetta hafði gengið nokkra stund, varð allt í einu dauðaþögn. Í sömu svifuum var hundinum fleygt inn til hennar. Þegar hún fór að gæta að, sá hún, að hundurinn var steindauður. Hafði hann verið skorinn á háls.
Almenn sögn

Heimildir

  • Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum