Reglubraut

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 14:53 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 14:53 eftir Dadi (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Reglubraut er lítil gata milli Vesturvegar og Vestmannabrautar og er ein af þremur götum í Eyjum sem eru ómalbikaðar. Lengst af tilheyrðu hús við götuna Vesturvegi og höfðu þá svokölluð b-númer. Nafnið Reglubraut var tekið upp sem sérstakt götuheiti fyrir fáeinum árum en ástæða nafnsins mun sú að um tíma voru margir íbúanna við götuna kunnir fyrir ýmislegt annað en reglusamt líferni. Var nafngiftin svokallað andhverfunafn og væntanlega ætlað til háðungar en lifir enn góðu lífi og hefur nú verið viðurkennt í götuskrá, svipað og Skvísusund sem leysti nafnið Norðursund af hólmi.

Gatnamót