Regína Matthildur Stefánsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. febrúar 2018 kl. 19:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. febrúar 2018 kl. 19:32 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Regína Matthildur Stefánsdóttir.

Regína Matthildur Stefánsdóttir húsfreyja fæddist 18. september 1923.
Foreldrar hennar voru Stefán Vilhjálmsson verkamaður, f. 24. ágúst 1890, d. 29. júní 1973, og kona hans Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 12. maí 1893, d. 24. júlí 1984.

Börn Guðríðar og Stefáns:
1. Guðný Sigurleif Stefánsdóttir, f. 14. febrúar 1918, d. 15. janúar 2009.
2. Ólafur Kristinn Stefánsson múrari, f. 8. ágúst 1919, d. 29. febrúar 2000.
3. Þorsteinn Stefánsson, f. 2. október 1920 á Litlu-Grund, d. 24. nóvember 1920.
4. Þorsteinn Stefánsson sjómaður, f. 9. nóvember 1921 í París II, fórst með flugvélinni Glitfaxa 31. janúar 1951.
5. Regína Matthildur Stefánsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1923.
6. Kristín Stefánsdóttir húsfreyja, f. 21. febrúar 1925.
7. Ásta Stefánsdóttir húsfreyja, f. 27. september 1927.
8. Vilhjálmur Stefánsson, f. 12. febrúar 1931.
Hjá þeim ólst upp sonur Regínu Matthildar
9. Henry Stefáns, síðar í Florida, f. 13. mars 1944 í Reykjavík.

Regína Matthildur var með foreldrum sínum, á Oddeyri (Flötum 14) við fæðingu 1923, í Vesturholti við Brekastíg 1927, í Hábæ 1930, á Fífilgötu 2 1940.
Hún fluttist til Reykjavíkur í byrjun 5. áratugarins og síðan til Bandaríkjanna, bjó í Cleveland í Ohio-fylki.

I. Barn hennar
1. Henry Stefáns, f. 13. mars 1944 í Reykjavík, ólst upp hjá móðurforeldrum sínum í Eyjum. Hann rekur gleriðnaðarfyrirtæki í Florida. Kona hans: Ágústa Gíslína Garðarsdóttir húsfreyja, f. 11. mars 1947.

II. Maður Regínu: Darvin Pratt, f. 28. september 1922 í Bandaríkjunum.
Barn þeirra:
2. Michael Pratt barþjónn í Las Vegas, f. 17. júlí 1951 í Cleveland.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.