Ræningjatangi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. júlí 2005 kl. 08:44 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. júlí 2005 kl. 08:44 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ræningjatangi, svona gætu aðstæður hafa verið er ræningjarnir komu að landi

Ræningjatangi er tangi sem stendur í suðurátt austan við Brimurð á Heimaey. Tanginn dregur nafn sitt af sjóræningjunum sem komu til Vestmannaeyja í Tyrkjaráninu árið 1627, en þar er sagt að sjóræningjarnir hafi komið í land, þar sem að ógreiðfært var fyrir þá inn höfnina vegna aðstöðu danska hersins þar.