Ræningjatangi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 09:17 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 09:17 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ræningjatangi er tangi sem stendur í suðurátt austan við Brimurð á Heimaey. Tanginn dregur nafn sitt af sjóræningjunum sem komu til Vestmannaeyja í tyrkjaráninu árið 1627, en þar er sagt að sjóræningjarnir hafi komið í land, þar sem að ógreiðfært var fyrir þá inn höfnina vegna aðstöðu danska hersins þar.