Pálmi Pétursson (verkstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. maí 2022 kl. 20:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. maí 2022 kl. 20:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Pálmi Pétursson''' frá Akureyri, verkamaður, verkstjóri fæddist 5. mars 1940 og lést 3. júlí 1988.<br> Foreldrar hans voru Pétur Pétursson bóndi á Bollastöðum í Blöndudal, A.-Hún., f. 23. mars 1920, d. 13. janúar 1979, og unnusta hans Guðrún Jónsdóttir talsímakona, f. 1. september 1921, d. 3. júlí 1988.<br> Kjörmóðir Pálma var Sigurjóna ''Karlotta'' Jóhannsdóttir kennari við Kvennaskólann á Blönduósi, f. 24. desember 1909, d. 7. mars 20...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Pálmi Pétursson frá Akureyri, verkamaður, verkstjóri fæddist 5. mars 1940 og lést 3. júlí 1988.
Foreldrar hans voru Pétur Pétursson bóndi á Bollastöðum í Blöndudal, A.-Hún., f. 23. mars 1920, d. 13. janúar 1979, og unnusta hans Guðrún Jónsdóttir talsímakona, f. 1. september 1921, d. 3. júlí 1988.
Kjörmóðir Pálma var Sigurjóna Karlotta Jóhannsdóttir kennari við Kvennaskólann á Blönduósi, f. 24. desember 1909, d. 7. mars 2004.

Pálmi flutti til Eyja, vann verkamannastörf, varð verkstjóri.
Þau Birna giftu sig, eignuðust fjögur börn, en fyrsta barn þeirra lést á fyrsta ári sínu. Þau bjuggu í Eyvindarholti við Brekastíg 7b 1959, við Brekastíg 23 1960, í Hvíld við Faxastíg 14 1964, á Stað við Helgafellsbraut 10 við Gosið 1973.
Þau fluttu til lands, bjuggu í Keilufelli 30 í Reykjavík 1986.
Pálmi lést 1988 og Birna 1995.

I. Kona Pálma var Birna Björgvinsdóttir húsfreyja, f. 7. júní 1940, d. 8. febrúar 1995.
Börn þeirra:
1. Drengur, f. 11. júlí 1959, d. 8. september 1959.
2. Björgvin Pálmason, f. 16. október 1960.
3. Karlotta Pálmadóttir, f. 18. september 1961.
4. Guðrún Solveig Pálmadóttir sölumaður, f. 5. mars 1964.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.