„Ofanleiti“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(breyting: ábendingar frá Kára Bjarnasyni)
Ekkert breytingarágrip
Lína 10: Lína 10:


[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Stubbur]]
[[Flokkur:Ofanbyggjarar]]

Útgáfa síðunnar 29. júní 2007 kl. 11:50

Ofanleiti.

Húsið Ofanleiti stendur utan byggðar fyrir ofan hraun. Þar var fyrrum prestsbústaður Ofanleitissóknar. Hét það áður Kirkjubær fyrir ofan Leiti og stundum kallað á Bæ. Talsverður búskapur var stundaður að Ofanleiti enda jörðin ein hin stærsta í Eyjum, með mikil hlunnindi í fugli, eggjatöku og reka; og áður fyrr nokkrar hjáleigur er tilheyrðu henni: Gvendarhús, Brekkuhús, Svaðkot, Steinsstaðir og Draumbær.

Kirkjugarðurinn við Ofanleiti.

Prestar Ofanleitissóknar sátu að Ofanleiti, allt fram til ársins 1961. Séra Halldór Kolbeins var síðasti presturinn sem þar sat. Húsið var rifið árið 1977 þar sem það þótti standa of nærri flugbrautinni og þar að auki illa farið.

Ofanleiti árið 2005

Valgeir Jónasson smiður byggði nýtt hús í landi Ofanleitis, nokkru norðan og vestan við gamla bæjarstæðið og nefndi það Ofanleiti. Þar er stunduð nokkur alifuglarækt.