Mylnuhóll

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 10:19 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 10:19 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Mylnuhóll, almennt nefnt Mylluhóll, var hús Góðtemplara og var byggt á árunum 1890-91. Húsið tilheyrði lóð Stakkagerðis og stóð á svonefndum Mylnuhól og dregur nafn sitt þaðan. Annars var húsið þekktast undir nafninu Gúttó, eða gamla Gúttó. Sveinn Jónsson, snikkari, faðir Ársæls Sveinssonar, útgerðamanns, var yfirsmiður við byggingu hússins.