Matthildur Ólafsdóttir (Lundi)

From Heimaslóð
Revision as of 19:28, 5 December 2016 by Viglundur (talk | contribs) (Verndaði „Matthildur Ólafsdóttir (Lundi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigation Jump to search

Matthildur Ólafsdóttir á Lundi fæddist 27. maí 1897 og lést 9. júlí 1918.
Foreldrar hennar voru Ólafur Svipmundsson bóndi á Loftsölum í Mýrdal, síðar búsettur á Löndum, f. 27. maí 1867 á Loftsölum í Mýrdal, d. 1. júní 1946 í Eyjum, og kona hans Þorbjörg Pétursdóttir húsfreyja á Loftsölum, f. 1. september 1864 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal, d. 18. ágúst 1903 á Loftsölum.
Fósturforeldrar hennar voru Gísli Engilbertsson verslunarstjóri í Juliushaab og kona hans Ragnhildur Þórarinsdóttir húsfreyja.

Bróðir Matthildar var
1. Árni Ólafsson, f. 18. janúar 1896, fórst með v/b Adólf VE-191 3. mars 1918, ókvæntur og barnlaus.

Matthildur var fóstruð á Lundi eftir lát Þorbjargar móður sinnar 1903, en lést 1918, á sama ári og bróðir hennar Árni.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.