Marteinn Árnason (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 22:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 22:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Marteinn Árnason (Vesturhúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Marteinn Árnason bóndi á Vesturhúsum og tómthúsmaður í Ömpuhjalli fæddist 1767, á lífi 1801.

Marteinn var bóndi á Vesturhúsum við giftingu 1793 og við fæðingu Magnúsar 1796, tómthúsmaður og sjómaður í Ömpuhjalli 1799 við fæðingu Ketils og 1801.

Kona hans, (maí 1793), var Oddný Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1761.
Börn þeirra hér:
1. Magnús Marteinsson, f. 4. desember 1796, d. 25. desember 1796, úr ginklofa.
2. Ketill Marteinsson, f. 31. janúar 1799 í Ömpuhjalli, d. 14. september 1837 úr „ofdrykkju og ...“ (ólesanlegt).


Heimildir