Maríus Jóhannsson (Hlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. mars 2021 kl. 17:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. mars 2021 kl. 17:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Maríus Jóhannsson (Hlíð)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Maríus Jóhannsson.

Maríus Jóhannsson sjómaður fæddist 5. júní 1891 í Ormskoti u. Eyjafjöllum og lést 1. nóvember 1983.
Foreldrar hans voru Jóhann Árnason bóndi í Ormskoti, f. 12. apríl 1862, d. 28. maí 1916, og kona hans Elín Jónsdóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1855, d. 8. júlí 1925.

Maríus var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Vigdís giftu sig í Eyjum 1915, eignuðust sjö börn, en misstu tvö þeirra á ungum aldri. Þau fluttu til Eyja 1915, hann frá Ormskoti, hún frá Múlakoti í Fljótshlíð.
Þau bjuggu í Hlíð, á Sæbergi og í Breiðholti. Þau fluttu til Reykjavíkur 1920, bjuggu síðast í Meðalholti 8.
Vigdís lést 1977.
Maríus dvaldi síðast á Hrafnistu í Reykjavík. Hann lést 1983.

I. Kona Maríusar, (8. maí 1915), var Vigdís Eyleif Eyjólfsdóttir, f. 26. ágúst 1893 á Snjallsteinshöfðahjáleigu, (nú Árbakki) í Landsveit, Rang., d. 3. maí 1977.
Börn þeirra:
1. Eyþór Elías Maríusson, f. 18. september 1916 í Hlíð, d. sama ár.
2. Ásta Maríusdóttir, f. 20. febrúar 1918 á Sæbergi, d. 12. maí 2007. Maður hennar Páll Valdimarsson, látinn.
3. Elín Maríusdóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 4. ágúst 1919 í Breiðholti, d. 31. október 2007. Maður hennar Ólafur Björn Guðmundsson.
4. Eyrún Maríusdóttir f. 21. júní 1923 í Reykjavík, d. 18. janúar 1999. Maður hennar Haraldur Pálsson.
5. Már Maríusson, f. 22. apríl 1926 í Reykjavík, d. 29. mars 1936.
6. Guðbjörg Lilja Maríusdóttir, f. 19. febrúar 1929 í Reykjavík. Maður hennar Jón I. Bjarnason, látinn.
7. Jóhann Már Maríusson, f. 16. nóvember 1935 í Reykjavík. Kona hans Sigrún Gísladóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.