Lyngfellisdalur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 12:59 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 12:59 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Lyngfellisdalur er dalur í sunnanverðu Sæfjalli, rétt norður af Kervíkurfjalli. Dalurinn er hátt ofan sjávarmáls.

Í botni Lyngfellisdals er Ræningjaflöt, þar sem sumir segja að sjóræningjarnir í Tyrkjaráninu 16. júní 1627, hafi þurrkað vopn sín og klæði, áður en haldið var til byggða. Flötin var mikið notuð til knattspyrnuæfinga á síðustu öld, áður en hinir eiginlegu grasvellir komu til sögunnar.